Skip to main content
26. febrúar 2022

Spjallaðu við nemendur á Stafræna háskóladeginum

Spjallaðu við nemendur á Stafræna háskóladeginum - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands kynnir allt framboð sitt í grunnnámi á Stafræna háskóladeginum, laugardaginn 26. febrúar 2022 milli klukkan 12 og 15. Þar gefst áhugasömum m.a. tækifæri til þess að spjalla við nemendur í öllum námsleiðum í grunnnámi í skólanum.

Stafræni háskóladagurinn er samstarfsverkefni allra sjö háskóla landsins og er þetta í annað sinn sem dagurinn er á netinu vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins. Á sameiginlegum vef háskólanna, haskoladagurinn.is, er hægt að kynna sér ótal spennandi námsleiðir í grunnnámi og það sama gildir að sjálfsögðu um vef Háskóla Íslands, hi.is.

Á vefsíðum einstraka námsleiða innan HÍ er hægt að skoða fyrirkomulag náms og myndbönd um námið og ræða við nemendur í nýju og persónulegu spjallkerfi sem Háskóli Íslands hefur tekið upp. Það eina sem þarf að gera er að finna nemanda í þeirri námsleið sem heillar þig og svo spyrð þú eins og þig lystir, hvort sem þig langar að vita meira um námið, félagslífið, kennara, aðstöðu eða eitthvað annað.

Þú kemst í samtal við nemendur bæði frá vefsíðu námsleiðanna sem þú ert að skoða og á síðunni Spurðu nema um námið. Á Stafræna háskóladeginum gefst því frábært tækifæri til þess að kynna sér fjölbreytt námsframboð Háskóla Íslands í grunnnámi og eiga gott spjall við þau sem þekkja námið best, nemendur skólans.

Á Stafræna háskóladeginum verður einnig hægt að fá ráð um val á námi og upplýsingar um umsóknarferli og skiptinám, spjalla við Stúdentaráðsliða og kynna sér alls kyns aðra þjónustu. Það er gert í gegnum netspjall HÍ sem er að finna neðst til hægri á vefsíðunni hi.is. Þar er hægt að velja um að spjalla við fulltrúa frá náms- og starfsráðgjöf, þjónustuborði, nemendaskrá, alþjóðasviði, upplýsingatæknisviði eða einhverju af fræðasviðum skólans. 

Háskóli Íslands mun einnig í framhaldi af Stafræna háskóladeginum bjóða upp á gönguferðir í litlum hópum um háskólasvæðið. Í gönguferðunum geta áhugasöm kynnst svæðinu og byggingum þess betur í fylgd með nemendum skólans. Hægt er að bóka ferð í Háskólagönguna á vef HÍ.

nemendur