Styrkir til nýnema sem innritast í HÍ í haust
Háskóli Íslands veitir framhaldsskólanemum, sem ná afburðaárangri á stúdentsprófi og innritast í skólann, styrki úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Skólinn auglýsir nú eftir umsóknum um styrki og er umsóknarfrestur til 5. júní.
Sjóðurinn var settur á laggirnar árið 2008 og síðan þá hafa hátt í nýnemar hlotið styrki úr honum. Styrkirnir eru að fjárhæð 300.000 kr. hver auk 75.000 kr. til endurgreiðslu á skrásetningargjaldi við Háskóla Íslands.
Að þessu sinni líkt og undanfarin ár verður sérstök áhersla lögð á að styrkja þá nemendur sem sækja um kennaranám eða annað nám í menntavísindum og eins þá nemendur sem hafa íslensku sem annað mál.
Við val á styrkhöfum er tekið mið af:
- framúrskarandi námsárangri á stúdentsprófi
- virkni í félagsstörfum
- árangri nemenda á öðrum sviðum, s.s. í listum og íþróttum
- sérstökum framförum í námi eða góðum námsárangri þrátt fyrir erfiðar aðstæður
Hægt er að sækja um styrk og kynna sér sjóðinn nánar á vef Háskólans.