Tækifæri fyrir nemendur til starfsþjálfunar hjá alþjóðastofnun
Nemendum Háskóla Íslands stendur til boða að sækja um tólf mánaða launaða starfsþjálfun við Evrópsku einkaleyfastofuna (EPO) og Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO). Frestur til að sækja um starfsþjálfun vegna tímabilsins 2022-2023 er til 18. febrúar.
Starfsþjálfunin er í 12 mánuði frá miðjum september ár hvert. Nemendur sem stunda nám á þeim sviðum sem sterkasta tengingu hafa við hugverkaréttindi eru sérstaklega hvattir til að sækja um, þar á meðal nemendur í verkfræði, raunvísindum, lyfjafræði, líftækni, viðskiptafræði, lögfræði, hagfræði, fjármálum og alþjóðasamskiptum. Nemendur Háskóla Íslands sem hafa lokið grunn- eða meistaranámi innan tveggja ára frá dagsetningu umsóknar eða eru skráðir í doktorsnám og hafa góða þekkingu á einu af þremur vinnutungumálum EPO (ensku, þýsku eða frönsku) geta sótt um. Sé sótt um hjá EUIPO gildir það sama nema að þar eru vinnutungumálin fimm.
Starfsþjálfunin er auglýst á Tengslatorgi HÍ og hægt er að sækja um þar og í tölvupósti til inno@hi. Athugið að ekki er hægt að sækja um hjá bæði EPO og EUIPO.
Hjá EPO og EUIPO öðlast nemendur einstaka starfsreynslu hjá alþjóðastofnunum og alhliða fræðslu á hugverkaréttindum. Auk þess fylgja starfsþjálfuninni ýmis konar fríðindi eins og tungumálanám. Þeir nemendur sem hafa áhuga á að sækja um starfsþjálfunina sækja fyrst um til Háskóla Íslands sem metur hvort viðkomandi uppfylli grunnskilyrði og útnefnir svo tiltekinn fjölda nemenda.
Þegar Háskólinn hefur metið umsóknir og tekið ákvörðun um hvaða nemendur verða útnefndir geta þeir nemendur sótt um hjá EPO eða EUIPO sem svo taka endanlega ákvörðun um hvaða umsækjendur eru valdir til starfsþjálfunarinnar.
Jón Gunnarsson, samskiptastjóri Hugverkastofunnar, og Jónína Kárdal, náms- og starfsráðgjafi við Háskóla Íslands og forstöðumaður Tengslatorgs, fara hér yfir hvað felst í starfsþjálfuninni og starfsþjálfun almennt.
Háskóli Íslands er aðili að Pan-European Seal áætlun Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) og Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO). Markmið áætlunarinnar er að auka þekkingu á hugverkaréttindum meðal nemenda og starfsfólks háskóla í Evrópu og brúa þannig bilið á milli háskóla og atvinnulífsins þegar kemur að hagnýtingu og verndun hugverka.