Skip to main content
7. júní 2022

Tíu vísindamenn við HÍ fá styrk frá Krabbameinsfélaginu

Tíu vísindamenn við HÍ fá styrk frá Krabbameinsfélaginu - á vefsíðu Háskóla Íslands

Úthlutað var úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins í sjötta sinn í byrjun júní. Veittir voru styrkir til 13 rannsókna að upphæð 68 milljónir króna. Vísindamenn við HÍ hlutu tíu af þessum styrkjum. Þar af voru fjórir styrkir til nýrra rannsókna og níu framhaldsstyrkir til rannsókna sem áður hafa fengið styrk úr sjóðnum. Alls bárust 28 umsóknir um styrk úr sjóðnum.

Vísindasjóður Krabbameinsfélags Íslands var stofnaður 16. desember 2015 til að efla íslenskar rannsóknir á krabbameinum, meðal annars með því að styrkja með fjárframlögum rannsóknir á orsökum krabbameina, forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga. Hryggjarstykki sjóðsins var stofnframlag Krabbameinsfélagsins auk tveggja erfðagjafa; úr Minningarsjóði Ingibjargar Guðjónsdóttur Johnson annars vegar og Minningarsjóði Kristínar Björnsdóttur hins vegar. Síðan hefur sjóðurinn notið stuðnings sjálfsaflafés Krabbameinsfélagsins en þar eru Velunnarar Krabbameinsfélagsins ómissandi.

Sjóðurinn hefur á undanförnum sex árum (2017-2022) veitt 71 styrk, alls 384 milljónir króna, til 41 mismunandi rannsókna.

Styrkþegarnir í ár eru:

  • Berglind Ósk Einarsdóttir, aðjúnkt í lífeindafræði við Læknadeild HÍ, hlýtur 6.000.000 kr. styrk fyrir verkefnið Hlutverk MITF í hindrun ónæmissvars sortuæxla.
  • Erna Magnúsdóttir, dósent í lífeindafræði við Læknadeild HÍ, hlýtur 4.793.400 kr. styrk fyrir verkefnið BLIMP1 miðluð stjórnun á frumuhring í Waldenströmsæxlum.
  • Guðrún Valdimarsdóttir, dósent í líffærafræði við Læknadeild HÍ, hlýtur 5.400.000 kr. styrk fyrir verkefnið Æxlingar úr brjóstakrabbameinssjúklingum meðhöndlaðir með æðaþelssértækum sameindalyfjum - Samanburður á frumæxlum og meinvörpum í ólíkum undirgerðum brjóstakrabbameins.
  • Margrét Helga Ögmundsdóttir, dósent í líffærafræði við Læknadeild HÍ, hlýtur 6.000.000 kr. styrk fyrir verkefnið Sjálfsát í krabbameinum: Greining á spendýrasértæku hlutverki ATG7.
  • Sigurður Yngvi Kristinsson, prófessor í lyflæknisfræði við Læknadeild HÍ, hlýtur 6.000.000 kr. styrk fyrir verkefnið Klínískt notagildi frumuflæðisjárrannsókna í forstigum mergæxlis og áhrif nærumhverfis mergæxlisfrumna á sjúkdómsframvindu.
  • Georgios Kararigas, prófessor í lífeðlisfræði við Læknadeild HÍ, hlýtur 5.269.760 kr. styrk fyrir verkefnið Áhrif nýju curcúmín afleiðunnar C66 á hjartavöðvakvilla af völdum doxórúbicíns.
  • Rósa Björk Barkadóttir hlýtur 3.294.778 kr. styrk fyrir verkefnið Meinvaldandi áhrif BRCA1 c.4096+3A>G könnuð í frumulíkönum.
  • Þórhildur Halldórsdóttir hlýtur 5.554.080 kr. styrk fyrir verkefnið Seinkun aldursklukkunnar: Dregur ljósameðferð úr flýttri líffræðilegri öldrun hjá konum eftir brjóstakrabbameinsmeðferð?
  • Pétur Orri Heiðarsson, dósent í efnafræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið HÍ, hlýtur 5.990.087 kr. styrk fyrir verkefnið Hlutverk óreiðusvæða í starfsemi MITF umritunarþáttari.
  • Guðmundur Hrafn Guðmundsson, prófessor í líffræði við Verkfræði- og raunvísndasvið HÍ, hlýtur 6.000.000 kr. styrk fyrir verkefnið Ónæmisstyrking gegn hitatengdri daufkyrningafæð án sýklalyfja.
  • Tómas Guðbjartsson, prófessor í skurðlækningum við Læknadeild HÍ, hlýtur 1.920.000 kr. styrk fyrir verkefnið Nýjungar í skurðmeðferð lungnakrabbameins á Íslandi.
  • Valur Emilsson hlýtur 5.878.175 kr. styrk fyrir verkefnið Vensl sermispróteina við þekkt og ný tilfelli krabbameina.
  • Valtýr Stefánsson Thors, lektor í barnasjúkdómafræði við Læknadeild HÍ, hlýtur 5.647.397 kr. styrk fyrir verkefnið Ónæmissvar barna eftir krabbameinsmeðferð - hvernig og hvenær er rétt að bólusetja?
Veittir voru styrkir til 13 rannsókna að upphæð 68 milljónir króna.