Um 250 krakkar sækja Háskóla unga fólksins í HÍ
Alþjóðamál, skurðlækningar, forritun, réttarvísindi, leikjafræði, menning Rómverja og leiðir til að lifa af úti í náttúrunni er meðal þess sem nemendur kynnast í Háskóla unga fólksins sem starfræktur verður í Háskóla Íslands dagana 13.-16. júní. 250 krakkar á aldrinum 12-14 ára hafa skráð sig í skólann.
Háskóli unga fólksins hefur fyrir löngu unnið sér sess sem árlegur sumarboði í starfi Háskóla Íslands en skólinn hefur verið starfræktur allt frá árinu 2004 í HÍ. Í skólanum kynnast fróðleiksfúsir og fjörugir krakka vísindum og undrum alheimsins út frá ýmsum spennandi og skemmtilegum sjónarhornum.
COVID-19-heimsfaraldurinn hefur sett mark sitt á skólahald í Háskóla unga fólksins undanfarin tvö ár en það er afar gleðilegt að geta boðið aftur stórum hópi ungmenna á háskólasvæðið.
Nemendur geta valið á milli 16 stundatafla þar sem þau fá innsýn í fjölbreytt fræði og vísindi. Í stundatöflunum er að finna námskeið af öllum sviðum Háskóla Íslands, í félagsvísindum, hugvísindum, menntavísindum, heilbrigðisvísindum, verkfræði, raun- og náttúruvísindum og þverfræðilegum greinum.
Meðal annars er boðið upp á stundatöflu þar efnafræði, hönnun vélmenna, nýsköpun, japanska, heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, tölvuleikjahönnun og íþrótta- og heilsufræði koma við sögu og aðra þar sem nemendur kynnast útikennslu og ævintýralegum athöfnum, réttarvísindum, næringarfræði, efnafræði, kínversku, forritun og skurðlækningum.
Kennsla fer fram fyrir hádegi í tveimur byggingum skólans, Öskju og Odda, en þess má geta að fimmtudaginn 15. júní verja nemendur öllum tímanum í tiltekinni grein í svokölluðu þema, en þemun eru ólík eftir stundatöflum. Háskóla unga fólksins lýkur svo með grillveislu og lokahátíð í hádeginu 16. júní.
Kennsla í Háskóla unga fólksins er í höndum kennara og nemenda við Háskóla Íslands.
Hægt verður að fylgjast með skólastarfinu bæði á vefsíðu skólans og Facebook-síðu hans.