Varði doktorsritgerð um Emily Dickinson í íslenskum bókmenntaheimi

Magnús Sigurðsson hefur varið doktorsritgerð við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Ritgerðin nefnist Fegurðin – Er –. Emily Dickinson í íslenskum bókmenntaheimi og var skrifuð á sviði almennrar bókmenntafræði undir leiðsögn Ástráðs Eysteinssonar, prófessors við Háskóla Íslands. Aðrir í doktorsnefnd voru Guðrún Björk Guðsteinsdóttir, prófessor í ensku við Háskóla Íslands, og Gauti Kristmannsson, prófessor í þýðingafræði við Háskóla Íslands.
Andmælendur við doktorsvörnina voru Soffía Auður Birgisdóttir, fræðimaður við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Höfn í Hornafirði, og Hólmfríður Garðarsdóttir, prófessor í spænsku við Háskóla Íslands. Torfi Tulinius, forseti Íslensku- og menningardeildar, stýrði athöfninni sem fram fór í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands fimmtudaginn 12. september.
Um rannsóknina
Rannsóknin fjallar um bandaríska ljóðskáldið Emily Dickinson (1830–1886), með áherslu á túlkun og viðtökur ljóða hennar á síðari tímum, bæði erlendis sem og á Íslandi. Rannsóknin er þverfræðileg, á mörkum bókmenntafræði, þýðingafræði og ritlistar. Sérstaklega er fjallað um stöðu íslensks þýðanda og íslenskrar ljóðlistar andspænis ljóðum Dickinson, og mynda þýðingar doktorsefnisins á allmörgum ljóða Dickinson hluta rannsóknarinnar. Ein meginforsenda rannsóknarinnar er að verkefni bókmenntaþýðenda skarist í senn við frumsaminn skáldskap og við túlkunarstarf gagnrýnenda og fræðimanna, en þýðingar myndi þó jafnframt sérstaka og að ýmsu leyti sjálfstæða gerð orðræðu.
Höfundur
Magnús Sigurðsson (f. 1984) lauk B.A.-prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands árið 2007 og M.A.-prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskólanum í Lundi árið 2012. Árið 2007 komu út þýðingar hans á Söngvunum frá Písa, ljóðabálki bandaríska ljóðskáldsins Ezra Pounds, og árið 2014 þýðingar hans á ljóðum bandarísku skáldkonunnar Adelaide Crapsey, Bláar hýasintur. Þá kom út úrval þýðinga Magnúsar á bandarískum samtímaskáldum í bókinni Að lesa ský árið 2018. Magnús hlaut styrk úr Háskólasjóði Eimskipafélags Íslands til að vinna að doktorsrannsókn sinni.