Varði doktorsritgerð um skáldið Jón Óskar
Guðmundur S. Brynjólfsson hefur varið doktorsritgerð í almennri bókmenntafræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Ritgerðin nefnist „Ég, sem þreyttur kem frá liðnum vetri“. Um margbrotna stöðu skáldsins og þýðandans Jóns Óskars í íslensku menningarumhverfi.
Andmælendur við vörnina voru Auður Aðalsteinsdóttir, nýdoktor við ROCS, og Haraldur Hreinsson, aðjunkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Ritgerðin var unnin undir leiðsögn Benedikts Hjartarsonar, prófessors við Íslensku- og menningardeild. Aðrir í doktorsnefnd voru Gunnþórunn Guðmundsdóttir, prófessor við Íslensku- og menningardeild, og Ólafur Rastrick, dósent í þjóðfræði við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild HÍ.
Gauti Kristmannsson, varaforseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands 10. maí síðastliðinn. (Smellið hér til að skoða myndir frá vörninni).
Um rannsóknina
Í rannsókn sinni kannaði Guðmundur stöðu skáldsins og þýðandans Jóns Óskars á íslenskum menningarvettvangi. Höfundarverki Jóns er fylgt eftir frá því hann fer að láta að sér kveða opinberlega á fimmta áratug síðustu aldar og nánast allt þar til hann lést 20. október 1998. Sjónum er beint að því hvernig hann birtist sem arrière-garde höfundur og helstu stíleinkenni hans og fagurfræði eru könnuð. Hugað er að því hvert hann sækir aðferð og fagurfræði og hvernig þessir þættir þróast á höfundarferlinum.
Um doktorinn
Guðmundur S. Brynjólfsson lauk BA-prófi í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands, MA-prófi í leiklistarfræðum frá Royal Holloway, University of London, djáknanámi frá Háskóla Íslands og tók vígslu sem djákni árið 2012 en lauk síðar MA-prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands. Guðmundur er rithöfundur og leikskáld en fæst einnig við kennslu og ýmis sérfræðistörf.