Skip to main content
23. mars 2022

Verkefnavaka HÍ gegn frestunarpest og ritkvíða

Verkefnavaka HÍ gegn frestunarpest og ritkvíða - á vefsíðu Háskóla Íslands

Verkefnavaka gegn frestunarpest og ritkvíða verður haldin fimmtudaginn 24. mars kl. 18-22 í Þjóðarbókhlöðunni.

Í boði verður dagskrá fyrir alla nema Háskóla Íslands sem eru með verkefni í smíðum, smá eða stór, námskeiðsverkefni eða lokaverkefni. Á Verkefnavökunni gefst gott tækifæri til þess að vinna í verkefnum eina kvöldstund í góðum félagsskap.

Styrkjandi leiðsögn sérfræðinga um allt það sem viðkemur verkefnaskrifum.

  • Ritver – aðstoð við fræðileg skrif
  • Náms- og starfsráðgjöf – hagnýt ráð varðandi skipulag og fleira tengt verkefnavinnu og vellíðan
  • Bókasöfn Háskóla Íslands – aðstoð og leiðbeiningar við heimildaleit og fleira

Hættu að blaðra og skrifaðu! – Vinnustofa þar sem setið er við skrif í þögn í 40 mínútur í senn

EndNote aðstoð – Vinnustofa fyrir þá sem eru að nota heimildaskráningarforritið EndNote og eru í einhverjum vandræðum

Leiðbeiningar um skil í Skemmuna – Farið í gegnum ferlið, yfirlýsinguna um meðferð lokaverkefna og fleira

Dagskrá vökunnar er að vinna í leiðarvísi hennar á vefnum leiðarvísar.is.

Markmið verkefnavökunnar eru:

  • að gefa nemum færi á að vinna að verkefnum sínum utan hefðbundins vinnutíma eina kvöldstund og fá aðstoð og hvatningu frá jafningjum, kennurum eða öðrum starfsmönnum Háskólans
  • að vekja athygli á þeim mikla vanda í háskólum heimsins að fjöldi stúdenta kvíðir því að skrifa og margir hverfa frá námi þegar lokaverkefnið eitt er eftir
  • að vekja athygli á að unnt er að aðstoða höfunda á öllum stigum ritunarferlisins og hjálpa þeim að komast af stað sem frestað hafa verkefnum of lengi

Fyrirmynd að verkefnavöku er sótt til ritvera í Þýskalandi sem héldu fyrstu vökuna 2010 undir nafninu Lange Nacht der aufgeschobenen Hausarbeiten. Verkefnið hefur breiðst út til háskóla austan hafs og vestan og er á ensku kallað Long Night against Procrastination.  

Að verkefnavökunni standa Ritver og Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands, bókasafn Menntavísindasviðs, Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn og Heilbrigðisvísindabókasafn LSH og HÍ.

Öll velkomin 

Frá Verkefnavöku