Lyfjafræði


Lyfjafræði
BS – 180 einingar
Lyfjafræði er fræðigrein sem fjallar um lyf frá öllum hugsanlegum sjónarhornum, allt frá þróun nýrra lyfjaefna og lyfjaforma, að framleiðslu, notkun og verkun lyfjanna. Lyfjafræðinámið er fjölbreytt nám, samsett af bóklegri og verklegri kennslu í hinum ýmsu greinum líf- og raunvísinda, auk greina úr félagsvísindum.
Skipulag náms
- Haust
- Frumulífeðlisfræði
- Öryggisnámskeið fyrir rannsóknarstofur
- Sameindalífvísindi A
- Lífræn efnafræði 1
- Almenn efnafræði L
- Verkleg efnafræði 1a
- Inngangur að lyfjafræði
- Vor
- Sameindalífvísindi B
- Eðlislyfjafræði I
- Lífræn efnafræði 2
- Verkleg lífræn efnafræði L
- Inngangur í þverfræðileg heilbrigðisvísindi - heilbrigðisvísindadagurinn
- Lífeðlisfræði
Frumulífeðlisfræði (LYF102G)
Farið í byggingu og starfsemi frumna og frumulíffæra, lífsameindir, stjórnun orkubúskapar og efnaskipta, boðskipti á milli frumna, lífeðlisfræðilega starfsemi taugakerfa, hormónakerfa og vöðva. Kynning á vefjaflokkum mannslíkamans.
Verklegar æfingar: lyfhrif og vöðvar.
Öryggisnámskeið fyrir rannsóknarstofur (LYF110G)
Farið er yfir helstu atriði sem tengjast öryggismálum á rannsóknarstofum eins og meðhöndlun efna, viðbrögð við óhöppum og efnamengun og viðbrögð við slysum. Í námskeiðinu eru nokkur stutt verkleg verkefni á rannsóknarstofunni og námskeiðið endar á eldvarnaræfingu.
Námskeiðið er ávallt haldið í byrjun annar, áður en almenn kennsla hefst.
Nauðsynlegt er að sækja námskeiðið til að fá leyfi til að taka þátt í verklegum æfingum á rannsóknarstofum. Mögulegt upptökunámskeið er í byrjun janúar, næsta misseri.
Sameindalífvísindi A (LÆK310G)
Námskeið í sameindalífvísindum fyrir nemendur á 2. ári í lyfjafræði, næringarfræði og tannlæknisfræði. Farið verður yfir hugtök og aðferðir í erfðafræði, lífefnafræði og sameindalíffræði. Í inngangsfyrirlestrum verður gefið yfirlit yfir þessar fræðigreinar og samþættingu þeirra. Fyrirlestrar fjalla um erfðamengi, erfðaefni, litninga, mítósu og meiósu, gen, mendelskar-, mítókondríu- og fjölþátta erfðir, helstu efnaskipti DNA og erfðatækni. RNA sameindir, tjáningu gena og umritun. Amínósýrur, peptíðtengi, nýmyndun og niðurbrot próteina. Myndbygging próteina, próteinlyf, ensím og ensímhvötuð efnahvörf. Einnig verður fjallað um transgenísk tilraunadýr, lífupplýsingafræði, sameindaerfðafræði veira og genalækningar. Lögð verður áhersla á notkun þessara fræðigreina í heilbrigðisþjónustu.
Umræðutímar: Nemendasértækir umræðutímar fyrir hvern nemendahóp.
Verklegar æfingar: Einangrun og greining á DNA úr blóði.
Lífræn efnafræði 1 (EFN309G)
Lífræn efnafræði kemur við víðs vegar í lífinu okkar, bæði í lífheiminum okkar og í framleiðslu á hinum ýmsu vörum sem við notum dagsdaglega. Lífræn efnafræði kemur einnig fyrir í mörgum öðrum fögum, svo sem lífefnafræði, lyfjafræði, matvælafræði, og læknisfræði. Skilningur á lífrænu efnafræðinni getur hjálpað við að dýpka skilning okkar á framleiðsluferlum í efna- og matvælaiðnaði, ýmsum lífefnafræðiferlum, og virknihátt lyfja og framleiðslu þeirra.
Í þessu námskeiði verður farið yfir grunnatriði lífrænnar efnafræði. Farið verður yfir hina ýmsu virknihópa, helstu eiginleika þeirra og hvarfgirni með sérstakri áherslu á alkana, alkena, alkyna, alkýl halíða, og arómata. Einnig verður farið yfir rúmefnafræðileg atriði og efnagreiningar lífrænna efna með NMR, IR og MS.
Almenn efnafræði L (EFN112G)
Almenn og sérhæfð atriði um efnatengi og sameindabyggingu. Efnahvörf. Lofttegundir, vökvar, föst efni og lausnir. Varma- og hraðafræði efnahvarfa. Efnajafnvægi: sýru-basa, fellingar-, komplex- og afoxunar. Rafefnafræði og kjarnefnafræði.
Verkleg efnafræði 1a (EFN110G)
Mólrúmmál loftkenndra efna, Efnafræðileg varmafræði,Vermi hvarfa og lögmál Hess, hraði efnahvarfa, niðurbrot vetnisperoxíðs, Le Chatelier, ákvörðun jafnvægisfasta með ljósgleypnimælingum, ákvörðun jónunarfasta sýru.
Skyldumæting er í öryggisfyrirlestur í fyrstu kennsluvikunni.
Inngangur að lyfjafræði (LYF113G)
Námskeiðið er hugsað sem þverfagleg kynning á lyfjafræðistarfinu og helstu sérgreinum lyfjafræðinnar. Nemendur fá stutta kynning á lyfjalögum, lyfjastefnu, lögum um heilbrigðisþjónustu, sérlyfjaskrá og lyfjaverðskrá. Fjallað verður um ýmsar stofnanir lyfjamála og það sem þeim tengist s.s heilbrigðisráðuneytinu, Lyfjastofnun, Sjúkratryggingar Íslands, Tryggingastofnun og fleira. Fjallað verður stuttlega um vísindasvið lyfjafræðinnar, lyfhrifafræði, lyfjahvarfafræði, lyfjagerðafræði o.s.frv.
Nemendur fara í starfskynningar í apótek, heildsölur, lyfjaframleiðslufyrirtæki og fleiri stofnanir og skila skýrslum þar um. Nemendur fá kynningu á Lyfjafræðifélagi Íslands og farið verður í vettvangsferð í Lyfjafræðisafnið. Farið er í helstu atriði úr sögu lyfjafræðinnar, siðareglur lyfjafræðinga, þagnarskyldi, ábyrgð og fagmennsku.
Sameindalífvísindi B (LÆK408G)
Námskeiðið er fyrir nemendur á 2. ári í lyfjafræði, næringarfræði og tannlæknisfræði. Í námskeiðinu er lögð áhersla á efnaskipti og þá þætti efnaskipta sem hafa sérstaka þýðingu fyrir þessa nemahópa. Fjallað verður um háorkusambönd, efnaskipti kolvetna, fitu og amínósýra. Samhæfing efnaskipta, núkleótíð, járn, hem, lifur, hormón og næringu. Í síðasta hluta námskeiðsins sem er einungis fyrir lyfjafræðinema og tannlæknanema verður fjallað um meltingu, upptöku og virkni næringarefna með áherslu á áhrif þeirra á heilsu.
Umræðutímar: Efnaskipti
Verklegar æfingar: Einangrun próteins á súlu, mæling á próteinstyrk, rafdráttur próteina, ónæmismæling (ELISA).
Eðlislyfjafræði I (LYF203G)
Námskeiðið fjallar um eðlisefnafræðielega eiginlega lyfjaefna sem skipta máli í lyfjafræði. Námskeiðið byggir á þekkingu nemenda úr efnafræði á haustönn 1. árs. Námskeiðið er nauðsynlegur grunnur fyrir lyfjagerðarfræði og frásog lyfja og dreifingu (lyfjahvarfafræði).
Í byrjun námskeiðs eru grunnhugtök stærðfræði fyrir lyfjafræðinemendur tekin fyrir og þeim hluta lýkur með hlutaprófi sem þarf að standast til að halda áfram í námskeiðinu. Í 2. hluta námskeiðs er farið yfir kristalbyggingar og eiginleika fastra efna. Í 3. hluta námskeiðs er farið í varmafræði og virkni. Auk þess farið í jónun lyfja. Í 4. hluta námskeiðsins er fjallað ítarlega um leysni lyfja og hvað getur haft áhrif á leysni og virkni lyfja í líkamanum.
Lífræn efnafræði 2 (EFN406G)
Í fyrirlestrunum verður fjallað um efnasmíði og efnahvörf efna sem tilheyra efnaflokkum alkohóla og fenóla, etera og epoxíða, aldehýða og ketóna, karboxýlsýra, karboxýlsýruafleiða, karbanjóna, amína, sykra og amínósýra. Þá verða kynntar helstu litrófsaðferðir við einkenningu lífrænna efna.
Verkleg lífræn efnafræði L (EFN215G)
Mörg þeirra efna sem við notum í okkar daglega lífi (plast, lyf, lím o.fl.) eru framleidd fyrir tilstilli lífrænnar efnafræði. Lyfjaiðnaðurinn er gott dæmi þar sem nauðsynlegt er að geta smíðað rétt efni, einangrað/hreinsað þau og borið kennsl á hvort rétt efni hafi verið smíðað.
Í þessu námskeiði munu nemendur fá þjálfun í grunnaðferðunum sem notaðar eru í verklegri lífrænni efnafræði og nýtist í efnaiðnaði. Einnig munu nemendur öðlast þjálfun í greiningu á niðurstöðum og skrifum á vísindalegum skýrslum.
Inngangur í þverfræðileg heilbrigðisvísindi - heilbrigðisvísindadagurinn (HVS202G)
Námskeiðið er ætlað nemendum á fyrsta námsári í greinum heilbrigðisvísinda. Sameiginlegur heilbrigðisvísindadagur nýnema allra deilda á Heilbrigðisvísindasviði í janúar ár hvert. Fjallað er um þverfaglegt samstarf og mikilvægi þess. Farið verður í grundvallarþætti samstarfsins svo sem sameiginlega sýn á réttindi til heilsu, samskipti og siðfræði. Einnig er fjallað um hlutverk og ábyrgð heilbrigðisvísinda.
Lífeðlisfræði (LYF201G)
Fyrirlestrar. Lífeðlisfræðileg starfsemi miðtaugakerfis, skynfæra, blóðrásar- og öndunarfærakerfis, nýrna , meltingar- og æxlunarfæra. Stjórnun orkubúskapar, efnaskipta og vaxtar. Viðbrögð mannslíkamans við áreynslu.
Verklegar æfingar. Hjarta og blóðrás, nýrnastarfsemi og viðbrögð við áreynslu. Skylt er að mæta í allar æfingar og umræðutíma þeim tengdum, skila niðurstöðuskýrslum og taka netpróf úr efni æfinganna.
Áfangapróf. Þrjú áfangapróf verða lögð fyrir á misserinu úr efni námskeiðsins eins og nánar er tilgreint í kennsluáætlun.
- Haust
- Eðlislyfjafræði IIE
- Lyfjahvarfafræði (ný kennsluskrá)E
- LyfjagreiningarE
- Störf lyfjafræðinga 1E
- Verkleg lyfjagreining (Ný kennsluskrá)E
- Vor
- Lyfjaform og aðgengi 1E
- Störf lyfjafræðinga 2E
- Lyfja- og efnafræði náttúruefnaE
- Samþætt sjúkdóma og lyfjaefnafræði 1: Hjarta, æðakerfi, lungu og innkirtlarE
- Verkleg Lyfjaefna- og náttúruefnafræði (ný kennsluskrá)E
Eðlislyfjafræði II (LYF311G)
Námskeiðið er framhald af eðlislyfjafræði I og er tvískipt (tvö próf). Í fyrri hluta námskeiðs er fjallað ítarlega um stöðugleika og niðurbrot lyfja. Í seinni hluta námskeiðs eru fjölliður teknar fyrir. Í námskeiðinu er mikilvægt að nemendur geti tengt námsefnið við lífræna efnafræði sem var kennd á 1. námsári.
Lyfjahvarfafræði (ný kennsluskrá) (LYF314G)
Eins, tveggja og þriggja hólfa kerfi. Dreifirúmmál og helmingunartími. Frásog lyfja. Aðgengi og frásogspróf. "Clearance". "First-pass" áhrif og útskilnaður lyfja um lifur. Áhrif próteinbindingar á dreifingu og útskilnað lyfja. Innrennslislyf. Fjölskömmtun, upphafsskammtur og viðhaldsskammtur. Áhrif þéttni lyfs á útskilnað þess. Útreikningar á lyfjaskömmtum. Lyfhrif, aukaverkanir og eiturverkanir. Langvirk lyfjaform. Áhersla verður lögð á stærðfræðilega útreikninga og notagildi þeirra. Umbrot lyfja í líkamanum, cytochrome P-450 ensím og flokkun þeirra, flutningsprótein fyrir lyf.
Forkröfur: Nemandi verður að kunna að reikna bestu línu (linear regression) og beita einfaldri tölfræði með notkun vasareiknivélar.
Lyfjagreiningar (LYF312G)
Markmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn inn í notkun sérhæfðra lyfjagreiningaaðferða. Lyfjagreiningar eru notaðar við auðkenningu og magnákvörðun virkra efna og umbrotsefna í lyfjum og lífsýnum. Þessar aðferðir eru títranir, litrófsgreiningar (UV-Vis, IR, AAS, AES), vökvagreiningar (TLC, HPLC, UPLC), gasgreiningar (GC), rafdráttur (CE) og massagreiningar (MS).
Störf lyfjafræðinga 1 (LYF310G)
Námskeiðið er ætlað til kynningar á starfsemi apóteka. Umsjónarkennari námskeiðsins sér um að finna nemanda viðeigandi apótek og leiðbeinanda, í samráði við Lyfjafræðideild HÍ. Í upphafi námskeiðsins verða haldnir fyrirlestrar um lausasölulyf, kennsla á lækningatæki, siðfræði og samskiptatækni. Að því loknu fer nemandinn í tveggja vikna starfsnám í því apóteki sem honum hefur verið úthlutað. Verkefni verða unnin samhliða starfsnáminu. Í þessu námskeiði er mætingarskylda.
Verkleg lyfjagreining (Ný kennsluskrá) (LYF313G)
Sérhæfðar efnagreiningaraðferðir sem notaðar eru við lyfjamælingar verða kynntar. Efnagreiningaraðferðir sem notaðar eru við einangrun og auðkenningu lyfja ásamt aðferðum sem notaðar eru við magngreiningu lyfja. Rafeindaróf í sýnilegu og útfjólubláu ljósi, ljósmæling og vökvagreining (LC).
Tekin verða fyrir núllta stigs, fyrsta stigs, annars stigs og þriðja stigs efnahvörf. Áhrif hitastigs og sýrustigs á efnahvörf. Áhrif salta, lausnarefnis og yfirborðsvirkra efna á efnahvörf. Vatnssækni og fitusækni. Flæði lyfja í gegnum lífrænar himnur.
Verklegar æfingar innihalda aðgreiningu og magngreiningu með HPLC, ákvörðun á pKa-gildum, hýdrólýsu, fasadreifingu og frásog í gegnum himnu.
Lyfjaform og aðgengi 1 (LYF414G)
Markmið námskeiðisins er að fjalla um þætti sem liggja til grundvallar lyfjagerð eins og dreifð kerfi, flæði vökva, hreinsun vökva, mismunandi aðferðir til að dauðhreinsa lyf og lyfjaumbúðir ætlaðar til gjafar fram hjá meltingarkerfinu (parenteral lyfjaform), síun og hjálparefni við lyfjagerð (rotvarnarefni, andoxunarefni, bragðefni, litarefni).
Einnig munu nemendur kynnast lausnum, fleytum, dreifum, lyfjaformum á húð, augnlyfjaformum, samsetningu þeirra, aðgengi og þeim kröfum sem eru gerðar til þeirra samkvæmt Evrópsku lyfjaskránni (Ph.Eur).
Störf lyfjafræðinga 2 (LYF411G)
Námskeiðið er hugsað sem kynning lögum og reglum sem snúa að starfsemi lyfjafræðinga. Í upphafi námskeiðs verða fyrirlestrar um lyfjalög með gestafyrirlesurum frá Lyfjastofnun, Embætti landlæknis og Sjúkratryggingum Íslands. Tekið er próf úr fræðilega hlutanum og eftir það eru tímar í hermisetrinu til þess að æfa færni í raunverulegum aðstæðum. Ákvarðanir verða að styðjast við lög og reglugerðir. Í þessu námskeiði er skyldumæting.
Lyfja- og efnafræði náttúruefna (LYF412G)
Í námskeiðinu er meðal annars farið í grunnatriði eins og annars stigs efni, vinnslu náttúruefna, hlutverk náttúruefna í lyfjauppgötvun, úrhlutunaraðferðir ásamt einangrun og auðkenningu náttúruefna. Einnig verður farið í stóra flokka náttúruefna eins og sykrur, shikimín-afleidd efnasambönd, fitur og pólýketíð. Síðar í námskeiðinu er farið í stóra efnaflokka náttúruefna á borð við terpena, efnasambönd lífmynduð út frá amínósýrum, alkalóíða og púrín/pýrimidín sambönd.
Samþætt sjúkdóma og lyfjaefnafræði 1: Hjarta, æðakerfi, lungu og innkirtlar (LYF415G)
Í námskeiðinu er fjallað um verður um einkenni, orsakir, meingerð og meðferð sem varðar Hjarta, æðakerfi, lungu og innkirtlasjúkdóma. Lögð er áhersla á verkunarhátt lyfja og áhrif þeirra á sjúklinga með hjarta- og æðasjúkdóma, lungnasjúkdóma og innkitlasjúkdóma. Í þessu námskeiði verða einnig tekin fyrir grunnhugtök í lyfhrifafræði og helstu gerðir viðtaka í líkamanum. Farið verður í meingerð og einkenni helstu sjúkdóma og klínískar leiðbeiningar við val á lyfjameðferðum. Farið verður í lyfjaefnafræði helstu flokka hjartalyfja, lungnalyfja og lyfja við innkritlasjúkdómum. Einnig er tekin fyrir klínísk aðgengisfræði, þætti eins og blóðmælingar, blóðgildi, nýrnastarfsemi o.fl. Sjúkratilfelli auk skömmtun vandmeðfarinna lyfja kemur einnig fyrir, svo sem hjartaglýkosíða. Einnig verður fjallað um algengar aukaverkanir og milliverkanir lyfja.
Verkleg Lyfjaefna- og náttúruefnafræði (ný kennsluskrá) (LYF413G)
Markmið námskeiðsins er að nemendur kynnist algengum aðferðum sem notaðar eru við einangrun og auðkenningu lyfjavirkra náttúruefna. Markmið námskeiðsins er jafnframt að kynna aðferðir sem eru notaða í lyfjaefnafræði og lyfjaþróun, t.d. með hlutsmíðum á náttúruefnum. Nemendur eiga að framkvæma einfaldar efnasmíðar á líffræðilega virkum náttúruefnum. Hreinsa efnin og ákvarða hreinleika þeirra. Gera greiningar til að staðfesta efnabyggingu. Framkvæma síðan líffræðileg próf og greina samband byggingar og virkni sem byggir á niðurstöðum fyrir efni sem nemendur hafa sjálfir smíðað ásamt efnum sem aðrir hafa smíðað. Notast verður við úrhlutanir og skiljunaraðferðir til einangrunar, efnahvörf til hlutsmíða, skiljumælingar og efnagreiningaraðferðir eins og t.d. TLC, SPE eða súluaðskiljun og HPLC ásamt UV, IR og NMR til að greina efnin.
- Haust
- Þverfræðileg samvinna í heilbrigðisvísindum
- Lyfjaform og aðgengi 2E
- Verkleg lyfjagerðarfræði (ný kennsluskrá)E
- Samþætt sjúkdóma- og lyfjaefnafræði 3: Sýkingar og lyfjameðferðirE
- Samþætt sjúkdóma-og lyfjaefnafærði 2: Ónæmiskerfið og lyfjameðferðirE
- Vor
- Störf lyfjafræðinga 3E
- Lyfjaform og aðgengi 3E
- BS verkefni
- Samþætt sjúkdóma- og lyfjaefnafræði 4: Tauga- og geðsjúkdómar og lyfjameðferðirE
Þverfræðileg samvinna í heilbrigðisvísindum (HVS501M)
Námskeiðið er ætlað nemendum á þriðja námsári eða síðar sem lokið hafa a.m.k. tveimur árum grunnnáms í greinum heilbrigðisvísinda. Hugmyndafræði þverfræðilegrar samvinnu verður lögð til grundvallar í námskeiðinu þar sem nemendur vinna saman að sameiginlegum markmiðum. Nemendur munu vinna saman í þverfræðilegum teymum og fá tækifæri til að æfa fagmennsku, teymisvinnu, og efla samskipti. Nemendur í hverjum hóp eru úr nokkrum heilbrigðisvísindagreinum.
Námsmat (staðið/fallið) byggist á verkefnavinnu, virkni í verkefnavinnu og prófum sem verða á rafrænu formi í kennslulotunni.
Kennslutilhögun:
Nemendum er skipt í þverfaglega námshópa í byrjun annar sem síðan skipuleggja fundartíma sínir sjálfir og skila lokaverkefnum fyrir lok október.
Lyfjaform og aðgengi 2 (LYF522G)
Námskeiðið fjallar um hönnun og framleiðslu lyfjaforma, sem og aðgengisfræði ólíkra lyfjaleiða. Nemendur munu kynnast mismunandi lyfjaformum og lyfjaleiðum, þar á meðal lyfjaformum og lyfjagjöf um munn, til innöndunar, í nef, stungulyfjum og lyfjum í leggöng og endaþarm. Farið verður sérstaklega í framleiðslu á töflum og hylkjum þar sem atriði eins og kornastærð og eiginleikar agna, áhrif blöndunar á töfluslátt, val á hjálparefnum og húðun taflna verða kennd. Einnig verður farið sérstaklega í gæðaeftirlit töfluframleiðslu og kröfur sem eru settar fram af Ph.Eur til töfluframleiðslu.
Þá verður aðlögun lyfjaforma og lyfjagjafar til mismunandi sjúklingahópa skoðaðar, sérstaklega til barna og aldraðra.
Verkleg lyfjagerðarfræði (ný kennsluskrá) (LYF523G)
Yfirgripsmikill verklegur áfangi þar sem unnið verður við grundvallaraðferðir við lyfjaframleiðslu. Almenn og sérhæfð atriði tengd helstu lyfjaformum og lyfjaframleiðslu á lausnum, dreifum, fleytum, smyrslum, kremum, áburðum, stílum, hylkjum, töflum. Ýmis hjálparefni verða notuð við lyfjagerð svo sem rotvarnarefni, andoxunarefni, bragðefni og litarefni. Blöndun duftefna, kornastærð, þurrkun, eiginleikar duftefna.
Verklegar æfingar: Almennar aðferðir samkvæmt verkhefti. Framleiðsla lyfjaforma samkvæmt forskriftum og lyfseðlum. Notast verður við lyfjastaðla og lyfjaskrár við framkæmd. Gæðaeftirlit; efnafræðilegt og tæknilegt mat á lyfjum og hjálparefnum til lyfjaframleiðslu samkvæmt gildandi lyfjastöðlum.
Samþætt sjúkdóma- og lyfjaefnafræði 3: Sýkingar og lyfjameðferðir (LYF521G)
Í námskeiðinu er fjallað um orsakir og lyfjameðferðir smitsjúkdóma.
Farið verður yfir uppbyggingu, eðli, sérkenni og mismun baktería, veira, sveppa og sníkjudýra, ásamt verklegri þjálfun á rannsóknarstofu í örverufræði. Farið verður í einkenni helstu smitsjúkdóma og klínískar leiðbeiningar við val á lyfjameðferðum. Farið verður í lyfjaefnafræði helstu flokka sýkingarlyfja, þar með talið gegn bakteríum, sveppum, veirum og sníkjudýrum. Samband byggingar og verkunar (SAR) helstu lyfjaflokka ásamt helstu frábendingum, auka- og milliverkunum. Einnig er tekin fyrir klínísk aðgengisfræði, sjúkratilfelli auk skömmtun vandmeðfarinna lyfja, svo sem vancomycin eða aminóglýkósíða.
Samþætt sjúkdóma-og lyfjaefnafærði 2: Ónæmiskerfið og lyfjameðferðir (LYF520G)
Námskeiðið fjallar um starfsemi ónæmiskerfisins í heilbrigði og sjúkdómum, sem og verkun helstu lyfja sem hafa áhrif á ónæmissvörun, svo sem stera, ónæmisbælandi lyf og bóluefni. Áhersla er lögð á tengsl efnafræðilegrar byggingar lyfja við virkni þeirra og notkun í klínískri meðferð.
Störf lyfjafræðinga 3 (LYF621G)
Námskeiðið er starfsnám í apótekum. Umsjónarkennari námskeiðsins sér um að finna nemanda viðeigandi apótek og leiðbeinanda, í samráði við Lyfjafræðideild HÍ. Í upphafi námskeiðsins verða haldnir fyrirlestrar um náttúrlyf, náttúruvörur og fæðubótarefni. Eins verður kynnt félagslyfjafræði sem snýr að því hvernig lyf og lyfjafræðileg þjónusta hafa áhrif á samfélagið, heilbrigðiskerfið og einstaklinga. Það felur í sér að skoða hvernig lyfjanotkun, lyfjafræðileg ráðgjöf og þjónusta geta bætt heilsu, aukið öryggi og stuðlað að betri heilbrigðisþjónustu, með sérstakri áherslu á áhrif á samfélagið og notendur. Að því loknu fer nemandinn í fjögurra vikna starfsnám í því apóteki sem honum hefur verið úthlutað. Verkefni verða unnin samhliða starfsnáminu. Í þessu námskeiði er mætingarskylda.
Lyfjaform og aðgengi 3 (LYF623G)
Í þessu námskeiði fá nemendur að kynnast nanótækni í lyfjafræði sem og grunn í hönnun tilrauna (DoE). Nemendur læra sem dæmi um lyfjaform á nanóskala með það að markmiði að beita markvissri lyfjagjöf (e. passive and active targeting). Teknir verða fyrir nanólyfjaberar með fitugrunn, fjölliðugrunn, prótein-tegnda og svo líftæknihannaða (utanfrumubólur). Nýting þessara nanólyfjabera gagnvart ákveðnum sjúkdómum verður rædd og þau lyf sem eru á markaði í dag verða tekin fyrir. Greiningaraðferðir á nanólyfjaberum og reglugerðarþætti varðandi eiturverkun og öryggi þessara nanólyfjabera verða tekin fyrir
BS verkefni (LYF618G)
Markmið BS verkefnis er að takast á við áskoranir sem fylgja þróun lyfjaforma. Áskoranir felast m.a. í því að lyfjaefni og hjálparefni hafa ólíka eiginleika og þegar hanna á lyfjaform þarf að taka mið af þeim þáttum. Nemendur beita ólíkum aðferðum í verkefninu til að útbúa lyfjaform sem uppfyllir kröfur og markmið sem leiðbeinandi setur í upphafi námskeiðs.
Samþætt sjúkdóma- og lyfjaefnafræði 4: Tauga- og geðsjúkdómar og lyfjameðferðir (LYF622G)
Í námskeiðinu er fjallað um orsakir og lyfjameðferðir taugasjúkdóma og geðrænna kvilla. Nánar tiltekið er farið í líffærfræði miðtaugakerfis, taugaboðefni og viðtakar þeirra, taugahrörnunarsjúkdóma og aðrir taugasjúkdóma, einnkenni, greining og meðhöndlun geðsjúkdóma og geðrænna kvilla. Farið verður í klínískar leiðbeiningar við val á lyfjameðferðum. Farið verður í lyfjaefnafræði helstu flokka lyfja við taugahrörnunarsjúkdómum svo sem Parkinsons, Alzheimer, MS og NMD, taugsjúkdómum svo sem flogaveiki, heilaskaðar or mígreni, geðrænum kvillum eins og þunglyndi, geðrofi, oflæti og kvíða. Einnig verður fjallað um svefnlyf, sterk verkjalyf og fíkniefni. Fjallað verður um samband byggingar og verkunar (SAR), og sameindafræðilega verkunarmát auk helstu helstu frábendingum, auka- og milliverka þegar það á við. Einnig er tekin fyrir klínísk aðgengisfræði, sjúkratilfelli ákvörðun lyfjameðferað við taughrörnunarsjúkdómu og geðsjúkdómum.
Hafðu samband
Skrifstofa Lyfjafræðideildar
Haga, Hofsvallagötu 53, 3. hæð
Sími 525 4353
lyf@hi.is
Opið virka daga kl. 10-12 og 13-15

Hjálplegt efni
Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.