Skip to main content

Hvernig verð ég íþróttakennari?

Íþróttakennaranám - á vefsíðu Háskóla Íslands

Íþróttakennaranám er fimm ára fræðilegt og starfstengt nám, sem skiptist í 180 eininga bakkalárnám og 120 eininga meistaranám sem veitir leyfisbréf kennari.Íþróttakennaranámið byggir á þeim kröfum sem gerðar eru í lögum nr. 95/2019 og reglugerð 1355/2022.

Að loknu námi telst viðkomandi uppfylla skilyrði yfir almenna og sérhæfða hæfni íþróttakennara þvert á skólastig.

Rétt til að nota starfsheitið kennari og starfa sem slíkur hér á landi við leik-, grunn- eða framhaldsskóla hefur sá einn sem til þess hefur leyfisbréf.

Inntak og inntökuskilyrði inn í kennaranám eru byggð á þeim kröfum sem gerðar eru í lögum nr. 95/2019 og reglugerð nr. 1355/2022. 

Við inntöku í kennaranám er horft til þess að viðkomandi teljist að námi loknu uppfylla skilyrði yfir almenna og sérhæfða hæfni kennara.

Ef ljóst er að umsækjandi í meistaranám til leyfisbréfs muni ekki uppfylla skilyrði fyrir sérhæfða hæfni kennara að loknu námi, verður þeim gert að bæta við sig námskeiðum úr grunnnámi til að tryggja að lágmarksfjöldi eininga í sérhæfingu sé uppfylltur.

Hæfni kennara í íslensku: Við brautskráningu úr kennaranámi við íslenska háskóla skal kennari búa yfir hæfni í íslensku sem samsvarar að lágmarki C1 í Evrópska tungumálarammanum.

Grunnnám (3 ár) Meistaranám til leyfisbréf (2 ár)
fimm ára fræðilegt og starfstengt nám
Tengt efni