Þekking – Frumkvæði – Ábyrgð
Hlutverk
- Mennta verðandi umhverfis- og byggingarverkfræðinga sem geta þróað og hannað hagkvæmar lausnir sem tryggja öryggi og stuðla að jákvæðum áhrifum á heilsu, umhverfi og samfélag.
- Stunda hagnýtar og fræðilegar rannsóknir í umhverfis- og byggingarverkfræði, sem hafa innlent og/eða alþjóðlegt vægi, samhliða þjálfun nemenda til rannsóknastarfa.
- Styðja atvinnulíf og samfélag í krafti sérþekkingar.
Nám og kennsla
Þekking
- Nemendur hljóti heilsteypta og fræðilega menntun sem stenst alþjóðlegan samanburð á helstu fagsviðum umhverfis- og byggingarverkfræði.
- Námið sé lausnamiðað þar sem nemendur vinni hagnýt verkefni með innlenda og alþjóðlega skírskotun.
- Nemendur öðlist færni í að greina, þróa, leysa, hanna og stjórna.
- Nemendur fái þjálfun í að ræða, skrifa um og kynna verkfræðileg viðfangsefni.
- Notaðir séu fjölbreyttir kennsluhættir og námsmat.
- Kennsla og rannsóknir séu samþætt.
Frumkvæði
- Nemendur tileinki sér gagnrýna hugsun og frumkvæði.
- Nemendur fái þjálfun í að vinna sjálfstætt og í hópum.
- Nemendur komi að þróun námsins.
Ábyrgð
- Nemendur vinni með sjálfbærni að leiðarljósi með því að taka tillit til umhverfislegra, hagrænna, og samfélagslegra þátta.
- Nemendur öðlist heildstæða sýn á tengsl umhverfis, öryggis, og heilsu við verkfræðileg viðfangsefni.