Skip to main content

Afreks- og hvatningarsjóður stúdenta Háskóla Íslands

Afreks- og hvatningarsjóður stúdenta Háskóla Íslands - á vefsíðu Háskóla Íslands

Afreks- og hvatningarsjóður stúdenta Háskóla Íslands styrkir framhaldsskólanema sem innritast í Háskóla Íslands og hafa náð afburðaárangri á stúdentsprófi. Styrkir eru veittir ár hvert.

 Við úthlutun er einnig leitast við að styrkja:

  • Nemendur sem sýnt hafa sérstakar framfarir í námi sínu.
  • Nemendur sem hafa náð góðum námsárangri þrátt fyrir erfiðar aðstæður.

Upphæð styrks

Hver styrkur er að fjárhæð 300.000 kr. auk 75.000 kr. til endurgreiðslu á skrásetningargjaldi við Háskóla Íslands. Styrkhafar fá styrkinn greiddan fljótlega eftir að nám við skólann hefst.

Hverjir geta sótt um?

Nýnemar við Háskóla Íslands, innritaðir í grunnnám, geta sótt um styrkinn.

  • Umsóknarfrestur fyrir skólaárið 2024-2025 var 5. júní 2024.

Skilyrði styrkveitingar

Við val á styrkhöfum er tekið mið af framúrskarandi námsárangri á stúdentsprófi. Einnig er horft til virkni í félagsstörfum og árangurs stúdenta á öðrum sviðum, s.s. í listum og íþróttum.

Í umsókn skal koma fram, auk almennra upplýsinga um umsækjanda:

  • Greinargóð lýsing á námsferli.
  • Stutt umfjöllun um annað sem umsækjandi hefur tekið sér fyrir hendur og telur að skipti máli.
  • Lýsing á framtíðaráformum.

Með umsókn þurfa að fylgja:

  • Stúdentsprófsskírteini.
  • Meðmælabréf.
  • Staðfesting á virkni í félagsstörfum, sérstökum aðstæðum og/eða árangri á öðrum sviðum.

Vönduð vinnubrögð og skýr framsetning á upplýsingum auðveldar mat stjórnar á umsóknum. Umsóknir án fylgigagna koma ekki til greina við val stjórnar á styrkhafa.

Frekari upplýsingar um úthlutun styrkja veitir Pétur Ástvaldsson; petura@hi.is.

Fyrri styrkhafar

Afreks- og hvatningarsjóður stúdenta Háskóla Íslands var stofnaður árið 2008. Frá upphafi hafa nærri 450 nýnemar við Háskólann hlotið styrki úr sjóðnum.

Stjórn sjóðsins

  • Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor við Félagsvísindasvið
  • Steinunn Gestsdóttir, prófessor við Heilbrigðisvísindasvið
  • Ólafur Pétur Pálsson, prófessor við Verkfræði- og náttúruvísindasvið

Myndir frá fyrri úthlutunum

Styrkþegar 2023
Styrkþegar 2022
Styrkþegar 2021
Styrkþegar 2020
Styrkþegar 2019
Styrkþegar 2018
Styrkþegar 2017
Styrkþegar 2016
Styrkþegar 2015
Styrkþegar 2014
Styrkþegar 2013
Styrkþegar 2012
Styrkþegar 2011
Styrkþegar 2010
Styrkþegar 2009
Styrkþegar 2008
Tengt efni
Viðtöl við styrkþega fyrri ára