Aurora-samstarfið
Aurora er náið evrópskt háskóla samstarf sem eflir nám, rannsóknir og nýsköpun við Háskóla Íslands í takt við örar samfélagslegar breytingar og áskoranir.
Samstarfið innan Aurora er hluti af stefnu Háskóla Íslands HÍ26 um alþjóðavæðingu náms og kennslu. Samstarfið skapar einnig sóknarfæri fyrir HÍ til að leggja meira af mörkum til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.
HÍ leiðir Aurora samstarfið.
Raddir nemenda hafa áhrif á alla stefnumótun, verkefni og nýsköpun Aurora háskólanna. Vertu með!
Aurora skapar ný tækfæri fyrir alþjóðlegt samstarf í rannsóknum og kennslu og styður kennara í að flétta samfélagslegar áskoranir í nám.
Kynntu þér hér tækifæri á næstunni á vegum Aurora fyrir nemendur og starfsfólk til að efla sig í námi og starfi. Það eru líka tækifæri til að leggja sitt af mörkum í þróun Aurora samstarfsins.
Aurora samstarfið leggur áherslu á nýsköpun og menntun sem gerir nemendum betur kleift að takast á við áskoranir samtímans.