Kynningarfundur fyrir nýnema á Hugvísindasviði
Hugvísindasvið Háskóla Íslands býður nýnemum á kynningarfundi 27. ágúst kl. 13:00. Fundirnir verða í deildum sviðsins og þar verður m.a. fjallað um lífið í Háskóla Íslands og námstilhögun við viðkomandi deildir.
Fundirnir eru eftirfarandi:
- Guðfræði- og trúarbragðafræðideild í Aðalbyggingu, stofu 229.
- Íslensku- og menningardeild í Árnagarði, stofu 201. (Smelltur hér til að fylgjast með streymi).
- Mála- og menningardeild í Veröld, stofu 023 (Auðarsalur). (Smelltur hér til að fylgjast með streymi).
- Sagnfræði- og heimspekideild í Árnagarði (sagnfræði í stofu 301 (streymi), heimspeki í stofu 304 (streymi) og fornleifafræði í stofu 310 (streymi)).
Kennsla hefst mánudaginn 30. ágúst.
Á nýnemavef Háskóla Íslands, vef Stúdentaráðs og á vef Hugvísindasviðs eru gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema um námið og skólann, þar á meðal stundaskrár. Eins er hægt að fá innsýn í starfið á facebooksíðum skólans og sviðsins og á Instagram síðum sviðs og skóla.
Ef einhverjar spurningar vakna um námið er hægt að hafa samband við starfsfólk á skrifstofu í síma 525 4400, senda okkur tölvupóst á netfangið hug@hi.is eða koma við á skrifstofu sviðsins í Aðalbyggingu (3. hæð); hún er opin kl. 10-12 og 13-15 virka daga (Lokuð vegna sumarleyfa 12. júlí til 3. ágúst).