Torfi H. Tulinius við Collège de France í París
Torfi H. Tulinius, prófessor við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, heldur um þessar mundir fjóra opinbera gestafyrirlestra um rannsóknir á fornsögum við Collège de France í París, einn virtasta rannsóknaskóla Frakklands. Collège de France er rannsóknastofnun á öllum sviðum vísinda og lista sem stofnuð var 1530. Prófessorar við skólann helga sig rannsóknum á sínu sviði en jafnframt er þeim ætlað að halda fyrirlestra um rannsóknir sínar sem eru öllum opnir. Stofnunin er einstök að þessu leyti í Frakklandi og þó víðar væri leitað.
Torfi er gestur William Marx, sem gegnir stöðu prófessors í samanburðarbókmenntum. Í fyrirlestrunum einbeitir Torfi sér að Íslendingasögum og hvernig þær spretta úr jarðvegi sem í senn einkennist af munnlegri frásagnarlist og þroskaðri bókmenntahefð. Einnig fjallar hann um hvernig þær vinna úr minningum samfélags um fyrstu aldir Íslandsbyggðar, og enn fremur hvernig þær takast á við ofbeldi í samfélagi samtíma höfunda og viðtakenda sagnanna. Um leið endurspegla þær breytingar sem eru að eiga sér stað í afstöðunni til einstaklings og sálar í samtíma þeirra. Í lokafyrirlestrinum verður sérstakri athygli beint að þætti dróttkvæðs skáldskapar í að móta sérstæða fagurfræði Íslendingasagna.
Fyrirlestarnir verða allir teknir upp og varðveittir á heimasíðu Collège de France og hér er hægt að horfa á upptöku frá fyrsta fyrirlestri Torfa sem haldinn var 2. nóvember.