Skip to main content
24. febrúar 2022

Sjö fá nýdoktorastyrki við HÍ

Sjö fá nýdoktorastyrki við HÍ - á vefsíðu Háskóla Íslands

Sjö nýútskrifaðir doktorar hafa hlotið styrki úr Nýdoktorasjóði Háskóla Íslands til þriggja ára. Doktorarnir koma til starfa við öll fimm fræðasvið skólans. 

Þetta er í fjórða sinn sem skólinn úthlutar styrkjum til nýdoktora í gegnum Nýdoktorasjóð, sem hét áður Nýliðunarsjóður, en eins og nafnið bendir er markmiðið með sjóðnum að efla nýliðun við skólann og veita ungum rannsakendum markvissan stuðning. 

Nýdoktorar eru afar mikilvægir öllu rannsóknastarfi við háskóla, ekki síst grunnrannsóknum, en nýdoktor (e. postdoc) er starfsheiti vísindamanns við rannsóknastofnun sem hefur nýlega lokið doktorsprófi en hefur ekki fengið fasta stöðu sem akademískur starfsmaður. 

Auglýst var eftir umsóknum um nýdoktorastyrki og bárust nærri 90 umsóknir að þessu sinni eins og sjá má í töflunni hér að neðan:

Fræðasvið Fjöldi umsókna
Félagsvísindasvið 13
Heilbrigðisvísindasvið 9
Hugvísindasvið 25
Menntavísindasvið 6
Verkfræði- og náttúruvísindasvið 34
Samtals 87

Mat og forgangsröðun umsókna og úthlutun styrkja var í höndum úthlutunarnefndar Nýdoktorasjóðs en hún tók mið af þeim kröfum sem fram komu í auglýsingu um styrkina.

„Verkefnin á bak við umsóknirnar voru afar fjölbreytt og fást við mikilvæg úrlausnarefni samtímans. Umsóknirnar voru margar afar sterkar og áhugaverðar og þvert á fræðavið og því erfitt að velja á milli þeirra,“ segir Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, aðstoðarrektor vísinda og formaður vísindanefndar háskólaráðs. 

„Það vakti líka sérstaka athygli okkar að mörg verkefnin voru afar umfangsmikil og metnaðarfull og fólu m.a. í sér samhæfingu gagnasafna úr ólíkum áttum og flókna líkanasmíð. Umsóknirnar undirstrika vel vaxandi styrk íslensks vísindasamfélags,“ segir Sif Einarsdóttir, prófessor í náms- og starfsráðgjöf og formaður úthlutunarnefndar Nýdoktorasjóðs.

Þeir sjö fræðimenn sem hljóta nýdoktorastyrk að þessu sinni eru:

Nafn Heiti Fræðasvið
Anna Björk Einarsdóttir Proletarian Worlds: The Socialist Literary World in the Nordic Countries (1920-1940) Hugvísindasvið
Anna Ejsmond Modelling effects of thiamine deficiency in a top marine predator, the common eider Rannsóknasetur HÍ á Snæfellsnesi
Greta Hoe Wells Future proglacial lake evolution and outburst flood hazard in Iceland Verkfræði- og náttúruvísindasvið
Haukur Ingvarsson Kaldastríðsmódernisminn á Íslandi 1940-1970 Hugvísindasvið
Jón Pétur Jóelsson Ventilator-induced lung injury - Identification of molecular pathways and possible therapeutics Heilbrigðisvísindasvið
Renata Emilsson Peskova Plurilingual Pedagogies for Diverse Classrooms Menntavísindasvið
Yoav Tirosh Disability in the Sagas of Icelanders Félagsvísindasvið

Háskóli Íslands óskar framangreindu fræðafólki innilega til hamingju með styrkina og velgengni í störfunum fram undan.

""