Skip to main content
30. maí 2022

Fjöllyfjameðferð og líkur á lyfjatengdum skaða í kjölfar innlagnar

Fjöllyfjameðferð og líkur á lyfjatengdum skaða í kjölfar innlagnar - á vefsíðu Háskóla Íslands

„Með hækkandi aldri þjóða fjölgar þeim sem eru með langvinna sjúkdóma og glíma við fjölveikindi. Einn af þeim þáttum sem taldir eru skipta miklu máli er notkun margra lyfja samtímis, svokölluð fjöllyfjameðferð. Þetta leiðir af sér líkur á lyfjatengdum skaða. Rannsóknarefnið mitt er byggt upp í kringum þá áskorun sem lyfjatengdur skaði er fyrir sjúklinga og heilbrigðiskerfið í heild sinni.“

Þetta segir Freyja Jónsdóttir, lektor í lyfjafræði, um doktorsverkefnið sitt sem hún vinnur nú að við Háskóla Íslands en verkefnið hlaut á dögunum styrk úr Doktorsstyrktarsjóði Háskóla Íslands. Það er til mikils að vinna að úr rannsóknum Freyju komi tillögur um úrbætur á sviði lyfjameðferðar því aldur íslensku þjóðarinnar hækkar sífellt með auknum áskorunum fyrir einstaklinga og heilbrigðiskerfið allt. Freyja hefur nú þegar ýmislegt að byggja á en frumniðurstöður úr rannsókninni benda til þess að algengi og nýgengi fjöllyfjameðferðar sé há í tengslum við innlögn á sjúkrahús vegna skurðaaðgerðar. 

„Auk þess eru þeir sjúklingar sem eru á fjöllyfjameðferð eða ofurfjöllyfjameðferð í aukinni áhættu á lengri sjúkrahúsdvöl og líkur aukast á endurinnlögn til viðbótar því að dánartíðni eykst,“ segir Freyja og bætir því við að næstu skref í rannsókninni séu að rýna hve viðeigandi lyfjameðferð aldraðra sé auk þess að spá fyrir um lyfjatengdan skaða í kjölfar aðgerðar. „Rannsóknin mun veita okkur dýrmætar upplýsingar, m.a. um hvernig við stöndum okkur í að veita viðeigandi lyfjameðferð. Við sem komum að rannsókninni teljum að niðurstöður hennar muni stuðla að öruggari og árangursríkari notkun lyfja á Íslandi,“ segir Freyja.

Öruggari og árangursríkari notkun lyfja 

Verkefni af þessum toga skipta miklu varðandi það að auka lífslíkur fólks með langvinna sjúkdóma, bæta heilsu þess og líðan samtímis því að draga úr kostnaði heilbrigðiskerfisins. Rannsókn Freyju er þess vegna í fullkomnum tengslum við áherslur nýrrar stefnu Háskóla Íslands, HÍ26, þar sem þunginn er á að leysa verkefni sem tengjast áskorunum samtímans, að hagnýta nýsköpun til að bæta hag samfélagsins og að leita lausna sem skilgreind eru í heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Þar er m.a. áhersla á heilsu og vellíðan og sérstaklega tiltekið að draga eigi úr ótímabærum dauðsföllum af völdum annarra sjúkdóma en smitsjúkdóma með fyrirbyggjandi aðgerðum. 

Freyja segir að í verkefninu verði framkvæmd faraldsfræðirannsókn á fjöllyfjameðferð og metið hversu viðeigandi lyfjameðferðin sé, áhættuþættir verði skoðaðir ásamt afdrifum sjúklinga í kjölfar innlagnar á spítala. „Einnig munum við beita spálíkani til að meta líkur á lyfjatengdum skaða í kjölfar innlagnar á spítala.“  

Freyja segir að rannsóknin sé mikilvæg til þjónustuþróunar í lyfjamálum innan heilbrigðiskerfisins, ekki síst við að forgangsraða verkefnum. „Við munum fá gagnlegar upplýsingar til að spá fyrir um hvaða sjúklingahópar búa við auknar líkur á lyfjatengdum skaða eftir innlögn sem gerir okkur þar með kleift að leita leiða til að fyrirbyggja hann.“

Verkefni af þessum toga skipta miklu varðandi það að auka lífslíkur fólks með langvinna sjúkdóma, bæta heilsu þess og líðan samtímis því að draga úr kostnaði heilbrigðiskerfisins.