Yfir þrjú þúsund tillögur í nafnasamkeppni um hús íslenskunnar
Mikil þátttaka var í samkeppni um nafn á hús íslenskunnar sem verður opnað formlega í næsta mánuði. Byggingu innviða hússins er lokið og frágangur innan dyra er á lokametrunum.
Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Árnastofnun og Háskóli Íslands efndu til nafnasamkeppni meðal almennings um nafn á húsið. Frestur til að taka þátt rann út 1. mars og höfðu þá borist tillögur frá hátt í 3.400 þátttakendum svo nærri lætur að eitt prósent landsmanna hafi tekið þátt í samkeppninni.
Dómnefnd á vegum ráðuneytisins og stofnananna tveggja mun fara yfir allar tillögurnar sem bárust og verður niðurstaða tilkynnt á vígsludegi hússins, 19. apríl næstkomandi.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarráðherra heimsótti hús íslenskunnar ásamt starfsfólki ráðuneytisins og Guðrúnu Nordal, forstöðumanni Stofnunar Árna Magnússonar í gær og það sama gerði háskólaráð og hluti af yfirstjórn Háskólans.
Sigurvegari nafnasamkeppninnar mun hljóta viðurkenningu við formlega opnun hússins þann 19. apríl.