Kennsluverðlaun HVS afhent tveimur framúrskarandi kennurum
Fimmtudaginn 12. desember voru veittar viðurkenningar fyrir virka kennsluþróun og nýmæli í kennslu á Heilbrigðisvísindasviði HÍ fyrir árið 2024. Að þessu sinni komu verðlaunin í hlut Bryndísar Evu Birgisdóttur prófessors við Matvæla- og næringafræðideild og Páls Þórs Ingvarssonar dósents við Lyfjafræðideild. Afhending kennsluverðlaunanna var liður í kennsluþróunardegi HVS en í þetta sinn var dagurinn helgaður gervigreind. Það var Unnur Anna Valdimarsdóttir, forseti Heilbrigðisvísindasviðs HÍ, sem veitti viðurkenningarnar.
Kennsla á hvaða skólastigi sem er er eitt af mikilvægustu störfum samfélagsins og góður kennari getur haft gríðarleg mótandi áhrif á nemendur sína, t.d. getur hann haft mikil áhrif áhugasvið þeirra og þar með hugsanlega framtíðarstarf nemanda og alla lífsýn. Það muna allir eftir góðum kennara og þeir hafa allir sett mark sitt á líf okkar á einn eða annan hátt.
Bryndís Eva Birgisdóttir, prófessor
Bryndís Eva kláraði kennsluréttindi við HÍ 2015 sem hún hefur nýtt á einstakan hátt hvað varðar frumlega og áhuga hvetjandi kennsluhætti.
Bryndís Eva hefur öll einkenni góðs kennara en þau eru að ná afar góðu og sterku sambandi við nemendur sína, bera umhyggju fyrir velferð þeirra og framtíð og hlusta á skoðanir þeirra með virðingu og skilningi. Hún stuðlar að því með kennslu sinni að nemendur öðlist skýra framtíðarsýn á hlutverk heilbrigðisstarfsmanna um að gera heiminn að betri stað, hvort sem heimurinn sé líf annarra einstaklinga eða hnattrænt heilbrigði.
Sjálfbært heilsusamlegt mataræði og lýðheilsa hefur verið Bryndísi Evu hugleikin bæði í rannsóknum og kennslu. Hérna tengir hún nýjustu rannsóknir við raunhæf verkefni sem nemendur taka þátt í með mikilli gleði og ánægju. Þessi verkefni geta t.d. verið, „hvernig miðlum við upplýsingum til mismunandi aldurshópa?“ eða „hvað einkennir mataræði ákveðinna landa?“ Með verkefnum eins og þessum læra nemendur hvernig félagsleg staða einstaklings hefur áhrif á fæðuval, hvernig menningartengt fæðuval getur haft áhrif á næringarástand og hve virðing fyrir menningu er mikilvæg fyrir verðandi næringarfræðinga. Vendikennsla ásamt því að leggja áherslu á að nemendur nálgist viðfangsefnin á faglegan og á jákvæðan hátt einkennir sérstaklega kennsluaðferðir Bryndísar Evu.
Bryndísi Evu hefur tekist að fá til sín bæði innlenda og erlenda gesti sem eru helstu sérfræðingar á hverjum tíma í þeim málefnum sem er verið að fjalla um hverju sinni, sem svo hafa verið fengnir inn sem gestakennarar í ýmiss námskeið. Þannig hafa nemendur öðlast innsýn í allt það nýjasta sem er að gerast t.d. á sviði sjálfbærs heilsusamlegs mataræðis og þannig tengt námsefnið við “daginn í dag”. Kennslukannanir Bryndísar Evu staðfesta þetta enda hefur ánægja með hennar kennslu verið einstök og hefur hún verið sá kennari sem hefur fengið endurtekin ummæli frá nemendum sem “einstakur kennari sem gefur líf og sál í að kenna afar flókið efni á aðgengilegan og áhuga hvetjandi hátt”.
Páll Þór Ingvarsson, dósent
Tilnefning Páls byggir á mati Kennsluráðs Lyfjafræðideildar sem tekur mið af niðurstöðum kennslukannana og samtölum við nemendur undanfarin ár. Páll hefur alltaf komið vel út úr kennslukönnunum og hafa hans námskeið ítrekað verið í efstu þremur sætum kennslukannana í Lyfjafræðideild. Páll fer með umsjón í námskeiðunum Inngangur að lyfjafræði (3 ECTS), Líftæknilyf (6 ECTS), Efnagreining Líftæknilyfja. Á vorönn kennir Páll einnig í námskeiðinu LYF618G BS verkefni sem er verklegt rannsóknarverkefni. Þar deilir Páll leiðbeiningu hópa/nemenda með umsjónarkennara námskeiðsins. Það námskeið hefur einnig ávallt komið vel út í kennslukönnun.
Greinilegt er að Páll hefur áhuga og metnað til að veita nemendum frammúrskarandi kennslu. Hann hefur þegar tekið 10 ECTS námskeiðið Inngangur að kennslufræði á háskólastigi og stefnir að því að ljúka við viðbótardiplóma í kennslufræðum fyrir háskólakennara. Páll hefur verið óhræddur við að prófa nýja kennsluhætti með það að markmiði að bæta gæði kennslu. Til að mynda hefur hann kynnt sér og nýtt í sinni kennslu svokallaða Team Based Learning kennsluaðferð. Páll hefur jafnframt einstaklega gott viðmót og nærvera hans stuðlar að góðu námsumhverfi nemenda.
Er það mat nemenda og kennara í deildinni að Páll sé afburða kennari sem við mælum með að verði veitt kennsluverðlaun HVS. Dæmi um fáeinar umsagnir nemenda úr miðmisseris- og kennslukönnunum:
• Mér finnst Páll metnaðarfullur og námskeiðið í heild vel heppnað.
• Virkilega góður kennari. Sést að hann hefur gaman að sínu starfi. Kemur fram við nemendur af virðingu og er mjög hvetjandi.
• Góður kennari, gott að leita til hans ef maður er óviss með eitthvað.
• Palli er snillingur. Svaraði öllum spurningum vel og alltaf auðvelt að nálgast hann.
• He is friendly and positive. Well organized in his presentations, clear. He is a good teacher.
• Mjög gott að fylgja honum eftir, áhugasamur og skýr. Brýtur vel upp á kennsluna og tryggir að maður sé að fylgjast með spurningum.