Skip to main content
20. febrúar 2025

Háskóli Íslands brautskráir 462 kandídata á föstudag

Háskóli Íslands brautskráir 462 kandídata á föstudag - á vefsíðu Háskóla Íslands

462 manns brautskrást úr grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands föstudaginn 21. febrúar og verður því fagnað með brautskráningarathöfn í Háskólabíói kl. 15. 

Athöfnin verður send út í streymi

Alls verða 215 kandídatar brautskráðir frá Félagsvísindasviði, 54 frá Heilbrigðisvísindasviði, 59 frá Hugvísindasviði, 83 frá Menntavísindasviði og 51 frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði. Alls taka því 462 nemendur við brautskráningarskírteini sínu á föstudag.

Athöfnin í Háskólabíói hefst á ávarpi Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands, og í framhaldinu tekur við brautskráning nemenda af fræðasviðunum fimm. Að lokinni brautskráningu mun Þorsteinn Elí Gíslason, MS í reikniverkfræði, flytja ávarp fyrir hönd kandídata og athöfninni lýkur á því að Háskólakórinn syngur nokkur lög.

Kandídötum er ætlað afmarkað svæði í Háskólabíói og eru þeir beðnir um að mæta ekki síðar en kl. 14.30 í Háskólabíó. Hver kandídat verður með númerað sæti sem kemur fram á nafnalista sem afhentur verður með dagskrá við innganginn og er sætaskipan í samræmi við afhendingu prófskírteina. Umsjónarfólk verður á staðnum til að leiðbeina um sætaskipan.

Frá brautskráningu