Kallað eftir hugmyndum fyrir Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands

Leitað er að nýstárlegum og hagnýtanlegum hugmyndum fyrir samfélag eða atvinnulíf meðal nemenda og starfsfólks Háskóla Íslands fyrir hin árlegu Vísinda- og nýsköpunarverðlaun skólans. Fólk af öllum fræðasviðum eru hvatt til að taka þátt í samkeppninni en verðlaun fyrir fyrsta sætið nema allt að tveimur og hálfri milljón króna. Skilafrestur hugmynda er 21. mars 2025.
Samkeppnin hefur verið haldin innan skólans í yfir 25 ár og hefur það að markmiði að laða fram nýsköpunarhugmyndir sem kunna að stuðla að samfélagslegum eða viðskiptalegum ávinningi án tillits til þess hvort hugmyndin hafi fjárhagslegan hagnað að markmiði.
Veitt eru verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar í fjórum flokkum:
- Heilsa og heilbrigði – Verðlaunafé 1,5 m.kr.
- Tækni og framfarir – Verðlaunafé 1,5 m.kr.
- Samfélag – Verðlaunafé 1,5 m.kr.
- Hvatningarverðlaun – Verðlaunafé 500 þ.kr.
Sigurvegari samkeppninnar, sem kemur úr hópi verðlaunahafa í flokkunum fjórum, hlýtur til viðbótar 1 m.kr. í verðlaunafé.
Við mat á hugmyndum skoðar dómnefndin einkum nýnæmi og frumleika, útfærslu, samfélagsleg áhrif, m.a. út frá heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, og hvort verkefnið sé í samræmi við stefnu skólans og styðji við starfsemi hans.
Frekari upplýsingar um Vísinda- og nýsköpunarverðlaun HÍ má finna á vefsíðu samkeppninnar.
Samkeppnin er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, ÁrnasonIFaktor og Auðnu – tæknitorgs.