Pólsk fræði - Grunndiplóma


Pólsk fræði
Grunndiplóma – 60 einingar
Nám í pólskum fræðum er í senn spennandi og áhugavert nám sem veitir innsýn í pólska tungu, menningu og samfélag.
Þetta nám er diplómanám sem er hægt að ljúka á tveimur árum.
Skipulag náms
- Haust
- Pólska: Málnotkun I
- Pólska: Málnotkun II
- Pólsk málfræði, lestur og ritun I
- Pólsk menning og samfélag
- Vor
- Pólska: Málnotkun III
- Pólska: Málnotkun IV
- Pólsk málfræði, lestur og ritun II
- Pólland í dag
Pólska: Málnotkun I (POL102G)
Þetta námskeið er fyrir alla þá sem hafa áhuga á pólsku. Engrar forkunnáttu er krafist þar sem námskeiðið er hugsað fyrir algera byrjendur. Í þessu námskeiði verður lögð áhersla á framburð, tileinkun orðaforða, skilning á töluðu máli og talmál. Nemendum sem vilja ná góðum tökum á öllum færniþáttum er bent á að taka einnig námskeiðið POL104G: Málfræði, lestur og ritun I.
Námskeiðið er kennt í 6 vikna lotu á fyrri hluta haustmisseris, tvisvar í viku 80 mínútur í senn, kl. 16:40 – 18:10, auk eins æfingatíma á viku í framburði. Námskeiðið er kennt á ensku og pólsku.
Pólska: Málnotkun II (POL103G)
Þetta námskeið er ætlað öllum sem hafa áhuga á pólsku og hafa lokið námskeiðinu Pólska: Málnotkun I eða hafa grunnþekkingu á pólsku máli (í samráði við kennara námskeiðsins). Í þessu námskeiði verður lögð áhersla á framburð, tileinkun orðaforða, skilning á töluðu máli og talmál. Nemendum sem vilja ná góðum tökum öllum færniþáttum er bent á að taka einnig námskeiðið POL104G: Málfræði, lestur og ritun I.
Námskeiðið er kennt í 6 vikna lotu á seinni hluta haustmisseris, tvisvar í viku 80 mínútur í senn, kl. 16:40 – 18:10, auk eins æfingatíma á viku í framburði.
Pólsk málfræði, lestur og ritun I (POL104G)
Í þessu námskeiði verður farið ítarlega í pólska málfræði á byrjendastigi. Nemendur fá þjálfun í að lesa og rita einfalda texta. Farið verður yfir reglur í beygingarfræði, orðhlutafræði, setningarfræði og stafsetningu. Nemendur vinna hagnýt verkefni í ritun og lesskilningi. Nemendum sem vilja ná góðum tökum á öllum færniþáttum er bent á að taka einnig námskeiðin Pólska: Málnotkun I og Pólska: Málnotkun II.
Námskeiðið er kennt á ensku og pólsku. Engrar forkunnáttu er krafist.
Pólsk menning og samfélag (POL105G)
Í þessu námskeiði fá nemendur yfirlit yfir sögu Póllands allt fram að seinni heimsstyrjöld. Farið verður sérstaklega í þá sögulegu atburði sem hafa sett mark sitt á pólska menningu og nemendur kynnast helstu bókmennta- og listaverkum og þeim listamönnum sem mótað hafa pólska þjóðarsál í gegnum aldirnar. Engrar forkunnáttu er krafist og námskeiðið er kennt á ensku.
Pólska: Málnotkun III (POL203G)
Þetta námskeið er fyrir alla sem hafa áhuga á pólsku og hafa lokið Pólska: Málnotkun I og Pólska: Málnotkun II eða hafa sambærilega þekkingu á pólsku máli (í samráði við kennara námskeiðsins). Í þessu námskeiði verður lögð áhersla á framburð, tileinkun orðaforða, skilning á töluðu máli og talmál. Nemendum sem vilja ná góðum tökum á öllum færniþáttum er bent á að taka einnig námskeiðið Málfræði, lestur og ritun II.
Námskeiðið er kennt í 6 vikna lotu á fyrri hluta vormisseris, tvisvar í viku 80 mínútur í senn, kl. 16:40 – 18:10, auk eins æfingatíma á viku í framburði.
Pólska: Málnotkun IV (POL204G)
Þetta námskeið er hugsað fyrir alla sem hafa áhuga á pólsku og hafa lokið námskeiðunum Málnotkun I, II og III eða hafa sambærilega þekkingu á pólsku máli (í samráði við kennara námskeiðsins). Í þessu námskeiði verður lögð áhersla á framburð, tileinkun orðaforða, skilning á töluðu máli og talmál. Nemendum sem vilja ná góðum tökum á öllum færniþáttum er bent á að taka einnig námskeiðið Málfræði, lestur og ritun II. Námskeiðið er kennt á ensku og pólsku.
Námskeiðið er kennt í 6 vikna lotu á seinni hluta vormisseris, tvisvar í viku 80 mínútur í senn, kl. 16:40 – 18:10, auk eins æfingatíma á viku í framburði.
Pólsk málfræði, lestur og ritun II (POL205G)
Þetta námskeið er framhald af námskeiðinu Málfræði, lestur og ritun I og í því er haldið áfram að vinna með pólska málfræði. Nemendur fá frekari þjálfun í að lesa og rita texta. Farið verður yfir reglur í beygingarfræði, orðhlutafræði, setningarfræði og stafsetningu. Nemendur vinna hagnýt verkefni bæði í ritun og lesskilningi. Nemendum sem vilja ná góðum tökum á öllum færniþáttum er bent á að taka einnig námskeiðin Pólska: Málnotkun III og Pólska: Málnotkun IV.
Forkröfur: POL104G: Pólsk málfræði, lestur og ritun I.
Námskeiðið er kennt á ensku og pólsku.
Pólland í dag (POL206G)
Í þessu námskeiði verður fjallað um sögu Póllands og menningu frá síðari heimstyrjöld og til dagsins í dag. Meðal umfjöllunarefna eru saga, stjórnmál og menning (með áherslu á bókmenntir, kvikmyndir og tónlist). Námskeiðið er kennt á ensku.
Hafðu samband
Skrifstofa Hugvísindasviðs
Aðalbygging, 3.hæð - Sæmundargötu 2
Sími: 525 4400
Netfang: hug@hi.is
Skrifstofan er opin virka daga frá kl 10:00–12:00 og 13:00–15:00.
Nemendur á Hugvísindasviði geta einnig nýtt sér Þjónustuborð á Háskólatorgi. Hægt er að nálgast upplýsingar í netspjalli hér á síðunni.

Hjálplegt efni
Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.