Skip to main content

Umhverfis- og auðlindafræði, doktorsnám

Háspennulína

Umhverfis- og auðlindafræði

180 einingar - Ph.D. gráða

. . .

Doktorsnám í umhverfis- og auðlindafræðum er þriggja ára fræðilegt og rannsóknatengt framhaldsnám. Doktorsnámið felst einkum í sjálfstæðri rannsókn sem lýkur með doktorsritgerð.

Námið

Markmið doktorsnáms í umhverfis- og auðlindafræðum er að veita doktorsnemum vísindalega þjálfun og búa þá undir vísindastörf, t.a.m. háskólakennslu eða sérfræðingsstörf hjá vísindalegum rannsóknastofnunum. Doktorspróf í umhverfis- og auðlindafræðum veitir rétt til lærdómstitilsins doktor (Doctor of Philosophy, philosophiae doctor, Ph.D.) í umhverfis- og auðlindafræðum. 

Inntökuskilyrði

Framhaldsnám

MS- eða MA gráða  umhverfis- og auðlindafræðum með fyrstu einkunn frá Háskóla Íslands, eða samsvarandi gráða frá öðrum háskóla. Ef undirbúningur doktorsnemans er ekki jafngildur þeim undirbúningi sem meistaragráða á sérsviðinu á að tryggja, skal gera kröfur um frekara nám eftir því sem ástæða þykir til.

Hafðu samband

Verkefnisstjóri námsins: 
Ragnheiður Ásta Sigurðardóttir
Sími: 525 4706
Netfang: umhverfi@hi.is