Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu? - Málþing

Aðalbygging
Hátíðarsalur
Málþingið Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu? verður haldið þann 28. maí 2025 kl. 13.30-15.30 í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Einnig verður málþingið í streymi. Hlekkur á streymi er hér
Málþingið er um niðurstöður viðtalsrannsókna um nýliða í kennslu þar sem kynjasjónarhorni var meðal annars beitt til að greina viðtölin. Sagt er frá tveimur rannsóknum, annarri þar sem rætt var fimm sinnum við sjö karla og hins vegar tvisvar til fjórum sinnum við ellefu konur, í báðum tilvikum yfir tveggja ára tímabil. Meiri upplýsingar má sjá hér: Nýliðar í grunnskólakennslu og kynjasjónarhorn.
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson prófessor emeritus og Valgerður S. Bjarnadóttir lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands leiddu rannsókninarnar. Auk þeirra voru Aðalheiður Anna Erlingsdóttir, Andri Rafn Ottesen og Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir í rannsóknarhópnum.
Kolbrún Þ. Pálsdóttir forseti Menntavísindasviðs opnar málþingið. Dagskráin er tveir fyrirlestrar og pallborðsumræður. Fyrirlestrarnir eru:
Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu: Nýliðar og kynjasjónarhorn. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson prófessor emeritus og Valgerður S. Bjarnadóttir lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Lærdómar af rannsókninni ræddir. Sigrún Gunnarsdóttir prófessor á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands.
Pallborðsumræða: Hvað má læra af þessum rannsóknum fyrir starf nýliða og fyrir skólastarfið í grunnskólunum? Stjórnandi er Svava Björg Mörk, lektor og umsjónarmaður námsins Starfstengd leiðsögn og kennsluráðgjöf á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Þátttakendur:
- Aðalheiður Anna Erlingsdóttir, kennari við Grunnskólann í Þorlákshöfn.
- Andri Rafn Ottesen, kennari við Garðaskóla.
- Álfheiður Einarsdóttir, skólastjóri Engjaskóla.
- Elísabet Soffía Bender, kennari við Hraunvallaskóla og formaður Rökvís, félags nýliða í kennslu
- Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir, kennari við Urriðaholtsskóla.
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands slítur málþinginu.
Málþingsstjóri er Karen Rut Gísladóttir, forseti Deildar kennslu- og menntunarfræði við Háskóla Íslands.
Rannsóknarstofa í þróun skólastarfs við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Kennarasamband Íslands standa að málþinginu.
.
