Skip to main content

Fullnýting hráefnis á frystitogurum

Marvin Ingi Einarsson, MS frá Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild 

„Rannsóknin snerist um að skoða rekstrargrundvöll fiskmjöls- og lýsisvinnslu fyrir nýjan frystitogara HB Granda og meta áhrif aukinnar vinnslu á pressuvökva, lýsi og soðvökva. Togarinn sem um ræðir er enn í smíðum en búið var að gera aflaáætlun fyrir skipið. Rannsóknin er einn þáttur í því að finna hagkvæmustu leiðina að fullnýtingu hráefnis á frystitogurum,“ segir Marvin Ingi Einarsson iðnaðarverkfræðingur um lokaverkefni sitt til MS-prófs sem unnið var veturinn 2016-2017.

Árið 2016 var Marvin sumarstarfsmaður hjá Matís þar sem hann vann að Evrópuverkefni sem ber heitið DiscardLess og snýr að aukinni nýtingu meðafla og aukahráefnis um borð í evrópska flotanum. Hann segir það hafa verið kveikjuna að lokaverkefninu og að það komi til með að nýtast honum í áframhaldandi vinnu þar. „Markmið verkefnisins var að reikna stofnkostnað á þremur ólíkum vinnslum og skoða hver leyfilegur stofnkostnaður er á fjárfestingunum með tilliti til uppgreiðslutíma. Þessar niðurstöður gera HB Granda kleift að bera saman verð á sams konar vinnslum við niðurstöðurnar og fá þannig mat á lengd uppgreiðslutíma og hvenær núllpunkti sé náð. Greina þurfti allar tekjur af vinnslunum, efnainnihald alls aukahráefnis sem fellur til við vinnsluna um borð, orkuþörf og breytilegan og fastan kostnað,“ segir hann.

Marvin Ingi Einarsson

„Markmið verkefnisins var að reikna stofnkostnað á þremur ólíkum vinnslum og skoða hver leyfilegur stofnkostnaður er á fjárfestingunum með tilliti til uppgreiðslutíma."

Marvin Ingi Einarsson

Sjávarútvegur og matvælaframleiðsla hefur alltaf heillað Marvin og kom það snemma í ljós í náminu. Hann fór í gegnum námskeiðin Fiskiðnaðartækni 1-2 og Matvælaverkfræði fyrir véla- og iðnaðarverkfræðinga hjá þeim Sigurjóni Arasyni og Birni Margeirssyni, en þeir voru jafnframt leiðbeinendur hans í verkefninu.

Marvin segir niðurstöður liggja fyrir og komi þær til með að nýtast HB Granda við ákvarðanatöku. Þar að auki muni líkanið sem til varð við gerð verkefnisins nýtast í áframhaldandi vinnu hans hjá Matís.

Leiðbeinendur: Sigurjón Arason, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild, og Björn Margeirsson, lektor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild