Framtíð nýsköpunar - streymi
Fjallað verður um fyrirtæki sem sprottið hafa úr rannsóknum og hugmyndum innan Háskóla Íslands og hvernig samþætta má vísindastarf og nýsköpun innan háskóla í samstarfi við atvinnulíf á öðrum fundinum í fyrirlestraröð Alvotech og Háskóla Íslands. Hann fer fram miðvikudaginn 10. nóvember kl. 14-16 í Hátíðasal Aðalbyggingar HÍ. Viðburðurinn er öllum opinn en hann verður einnig sendur út í streymi.
Fyrirlestraröðin, sem hófst fyrr í haust og er samstarfsverkefni Alvotech, Háskóla Íslands og Vísindagarða Háskóla Íslands, ber yfirskriftina „Framtíð nýsköpunar“. Þar er fjallað um tækifæri fyrir íslenskt samfélag sem felast í nýsköpun sem byggist á vísinda- og rannsóknastarfi á breiðum grundvelli.
Á fyrsta viðburðinum fengu gestir innsýn inn í reynslu þekktra sænskra vísindamanna og annarra norrænna sérfræðinga á sviði nýsköpunar en að þessu sinni er ætlunin að líta yfir sviðið innan lands og skoða hvaða ávinningur er af samstarfi vísinda og iðnaðar í heilbrigðisvísindum.
Sjónum verður beint að fyrirtækjum tengdum líftækni og lyfjaiðnaði sem sprottið hafa upp úr rannsóknum og hugmyndum innan Háskóla Íslands og hvernig samþætta má vísindastarf og nýsköpun innan háskóla í samstarfi við atvinnulíf. Einnig verður fjallað um nýsköpun og framlag til sjálfbærni innan fyrirtækja í líftæknilyfjaiðnaði.
Opnunarávörp flytja þau Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Í framhaldinu taka við erindi og reynslusögur úr Háskóla Íslands og atvinnulífinu og m.a. fjallað um hvernig tengja má betur saman háskólastarf og atvinnulíf í þágu nýsköpunar. Erindi flytja:
- Þorsteinn Loftsson, prófessor emeritus við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands og annar stofnandi Oculis – „Er hægt að vera bæði í vísindum og iðnaði? Reynslusaga úr Háskóla Íslands“
- Aðalheiður Pálmadóttir, VP of Business Development hjá Controlant, og Erlingur Brynjúlfsson, CTO og einn stofnenda Controlant – „Frá HÍ út um allan heim”
- Einar Mäntylä, framkvæmdastjóri Auðnu tæknitorgs – „Hugvitið í askana – er leiðin greið?“
- Tanya Zharov, aðstoðarforstjóri Alvotech – „Sjálfbær framtíð í líftækni á Íslandi“
Fundarstjóri er Sigurður Magnús Garðarsson, stjórnarformaður Vísindagarða Háskóla Íslands og forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs.
Viðburðurinn er öllum opinn en gestir eru beðnir um að skrá þátttöku. Vakin er athygli á því að grímuskylda er á viðburðum Háskóla Íslands.
Nánari upplýsingar um fundaröðina