Skip to main content
31. janúar 2022

Gríðarleg aðsókn í AWE-nýsköpunarhraðallinn fyrir konur  

Gríðarleg aðsókn í AWE-nýsköpunarhraðallinn fyrir konur   - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóla Íslands bárust alls 114 umsóknir frá 147 konum í AWE-nýsköpunarhraðalinn fyrir konur sem nú er haldinn í annað sinn á Íslandi. Aðstandendur 37 viðskiptahugmynda voru valdar til þátttöku í hraðlinum og hefja í þessari viku vegferð sem miðar að því að þróa hugmyndirnar enn frekar undir leiðsögn reynslumikils hóps kvenna úr íslensku atvinnulífi. 

Auglýst var eftir þátttakendum í upphafi árs og var bæði hægt að sækja um sem einstaklingur og sem hluti af teymi. Flestar umsóknir bárust frá konum á höfuðborgarsvæðinu en einnig bárust 22 umsóknir frá konum af landsbyggðinni. Í ár var sérstök áhersla lögð á að virkja konur af  erlendum uppruna á Íslandi og er ánægjulegt að segja frá því að sú viðleitni skilaði sér.  

Alls voru 37 hugmyndir valdar til þátttöku að þessu sinni en að baki þeim standa samtals 50 konur. Það komust því færri konur að en vildu en þess má geta að þátttakendum var fjölgað umtalsvert á milli ára eftir að í ljós kom að mikill áhugi var fyrir hraðlinum þegar hann var haldinn í fyrsta sinn í fyrra. 

Markmið hraðalsins er að styðja konur í að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar og fyrirtæki og auka hlut þeirra innan frumkvöðla- og nýsköpunargeirans. Þátttakendur verða hluti af náms- og þekkingarsamfélagi þar sem þær njóta handleiðslu reyndra kvenna í nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi við uppbyggingu fyrirtækja, mynda ný tengsl og efla starfsþróun og starfshæfni. Aldrei hefur verið mikilvægara en nú að fjölga sprotum og efla nýsköpun í íslensku efnahagslífi og að sama skapi auka hlut kvenna á þeim vettvangi.   

Fida Abu Libdeh, forstjóri og annar stofnenda GeoSilica, Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch, framkvæmdastjóri Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands, og Hólmfríður Sveinsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Mergur Ráðgjöf, verða mentorar í hraðlinum en þær búa allar að mikilli reynslu innan frumkvöðla- og nýsköpunargeirans.  

Þá mun öflugur og reyndur hópur sérfræðinga úr háskólasamfélaginu, atvinnulífi og nýsköpunargeiranum á Íslandi koma að fræðslu og kennslu í hraðlinum. Þátttakendur sækja einnig netnámskeiðið Dreambuilder á vegum Thunderbird School of Managament við Ríkisháskólann í Arizona.   

Nýsköpunarhraðallinn er haldinn undir merkjum Academy for Woman Entrepreneurs (AWE) í samvinnu við bandaríska sendiráðið á Íslandi. Aðrir samstarfsaðilar eru Félag kvenna í atvinnulífinu og Samtök kvenna af erlendum uppruna.  AWE-verkefnið er í boði í yfir 50 löndum víða um heim á vegum bandarískra stjórnvalda en Ísland er fyrst norrænu ríkjanna til að taka þátt í því.  

""