Hátíðarkveðja frá rektor Háskóla Íslands
Hátíðarkveðja Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands.
„Kæri Háskólavinur.
Það eru svo skarpar andstæður í umhverfi okkar núna þegar jólin nálgast með sínu mikla ljósahafi. Þegar skammdegið hefur tekið völdin á norðurhveli jarðar verða ljósin nefnilega skærust.
Friðarsúlan í Viðey er eitt þeirra ljósa sem snertir við okkur þegar skuggarnir eru lengstir. Friðarsúlan er sköpunarverk fjöllistakonunnar Yoko Ono. Henni er ekki einungis ætlað að lyfta nafni eiginmanns hennar og tónlistarmannsins Johns Lennon heldur er hún líka leiðarljós okkar að heimsfriði.
Margir gefa sér sjálfsagt að það sé ekki okkur ætlað, þessari smáu þjóð við ysta haf, að breyta miklu í þeim efnum. Engu að síður valdi Yoko Ono Ísland sem stað fyrir Friðarsúluna sem á að varða okkur leiðina á táknrænan hátt í átt að friði. Verum minnug þess, sagði Yoko, að við höfum hvert og eitt kraft til að breyta heiminum.
Þetta ár er brátt á enda og það hefur verið okkur þungt um margt. En seigla nemenda okkar og starfsfólks hefur skilað því að háskólastarfið í Háskóla Íslands hefur þrátt fyrir allt verið að mestu eðlilegt í haust og vetur. Fyrir það er ég þakklátari en orð fá lýst.
Því miður eru blikur á lofti þessa dagana varðandi útbreiðslu COVID-19 en áframhaldandi sóttvarnir skipta gríðarlega miklu við að verja samfélagið allt á nýju ári.
Nú er dagsbirtan naumlega skömmtuð en vetrarsólstöður boða breytta tíð. Sólin hækkar smám saman á himni og vekur á endanum vorið hér á norðurhveli jarðar. Höfum í huga að í vændum er betri tíð og árangur okkar gegn óværunni næst í krafti rannsókna og samstöðu.
Hlustaðu á ljósið, sem logar kyrrlátt í brjóstinu, hvernig sem viðrar, orti skáldið Njörður P. Njarðvík sem kenndi árum saman hér við Háskóla Íslands.
Kæri Háskólavinur. Fylgjum ljósinu og höldum bjartsýn inn í nýtt ár. Ég óska þér gleðilegrar hátíðar og farsæls komandi árs.“
Háskóli Íslands óskar landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á nýju ári.