HÍ hluti af Samstarfsneti háskóla um samfélagslega ábyrgð
Háskóli Íslands hefur fengið aðild að Samstarfsneti háskóla um samfélagslega ábyrgð (University Social Responsibility Network (USRN)) sem býður upp á ýmis spennandi tækifæri fyrir stúdenta og starfsfólk sem vill láta að sér kveða á þessu sviði.
Samstarfsnetið var stofnað árið 2015 og markmið þess er að leiða saman háskóla til að vinna saman að og deila hugmyndum að lausnum við ýmsum áskorunum samtímans, en þær snerta m.a. jafnrétti, frið, sjálfbærni og umhverfismál, heilsu og hagsæld allra. Sextán háskólar víða um heim eiga aðild að samstarfsnetinu. Háskólarnir deila þeirri sýn að vilja bæta samfélagið og leggja sitt af mörkum til lausnar stórum áskorunum á alþjóðavettvangi, m.a. með kennslu, rannsóknum, þjónustu við samfélag og fræðslu fyrir almenning.
Jafnframt er það markmið samstarfsnetsins að stuðla að aukinni umræðu um samfélagslega ábyrgð háskóla almennt. USRN stendur m.a. fyrir ráðstefnum, útgáfu og miðlun af ýmsu tagi en einnig námskeiðum fyrir nemendur og stúdentaskiptum sem miða að því að efla samfélagslega ábyrgð.
Aðild að netinu eiga skólar úr öllum heimsálfum og í þeirra hópi eru Tufts-háskóli í Bandaríkjunum, University of New South Wales í Ástralíu, Kyoto-háskóli í Japan, Beijing Normal University í Kína, Manchester-háskóli á Englandi, Simon Fraser University í Kanada og Háskólinn í Sao Paolo í Brasilíu.
Með aðild Háskóla Íslands að samstarfsnetinu skapast nýr vettvangur fyrir bæði starfsfólk og stúdenta til að leita lausna við ýmsum áskorunum samtímans og um leið að kynnast því hvernig aðrir háskólar og menningarheimar takast á við þessar áskoranir með samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi.
Í nýrri stefnu Háskóla Íslands, HÍ26, er áhersla á samstarf og samtal við samfélag, atvinnulíf og háskóla um heim allan auk þess sem sjálfbærni og fjölbreytileiki eru meðal lykilþátta. Skólinn hefur einnig heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Því er óhætt að fullyrða að aðild að USRN falli afar vel að þeim áherslum sem móta munu háskólastarfið á næstu árum.
Við þetta má bæta að Háskóli Íslands hefur undanfarin þrjú ár verið á lista Times Higher Education yfir þá háskóla sem hafa mest samfélagsleg og efnhagsleg áhrif út frá heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna (University Impact Rankings). Manchester-háskóli, einn af aðildarskólum USRN, trónir á toppi þess lista.
„Það er mikið fagnaðarefni fyrir Háskóla Íslands að fá aðild að USRN. Öflugt alþjóðlegt samstarf er gríðarlega mikilvægt fyrir HÍ og þátttaka í USRN skapar ný tækifæri fyrir starfsfólk og nemendur okkar. Þátttaka í USRN er mjög í anda nýrrar stefnu, HÍ26, sem leggur þunga áherslu á sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð. Við hlökkum til samstarfsins innan USRN!“ segir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.