Launuð starfsþjálfun fyrir nemendur í boði hjá Alvotech á nýju ári
Líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech, í samstarfi við Háskóla Íslands og Tengslatorg skólans, býður nú nemendum skólans í annað sinn upp á launaða starfsþjálfun á sviði líftækni. Starfsþjálfunin er opin þeim sem hafa nýlega lokið námi í líffræði, efnafræði, lífefnafræði og lyfjafræði.
Verkefnið er liður í því að þjálfa einstaklinga fyrir framtíðarstörf innan líftæknilyfjageirans. Starfsþjálfunin felur í sér bæði fræðilega og verklega þjálfun og þátttakendur öðlast hæfni í öllum grunnþáttum greiningarvinnu, við þróun og framleiðslu líftæknilyfja.
Fimm einstaklingar eru teknir inn í hvert sinni og var fyrsti hópurinn valinn nú í haust úr u.þ.b. 100 umsóknum sem bárust um starfþjálfunina. Um er að ræða fimm mánaða launað starfsnám en Alvotech er með höfuðstöðvar sínar á svæði Vísindagarða Háskóla Íslands í Vatnsmýri. Að þjálfun lokinni verður þeim sem uppfylla þjálfunarkröfur boðið framtíðarstarf á gæðasviði Alvotech.
„Fyrsta þjálfunarprógrammið, sem er í fullum gangi, hefur gengið frábærlega og við erum nú að leita að hæfileikaríkum nýútskrifuðum einstaklingum í starfsþjálfun frá febrúar 2022. Síðast fengum við yfir 100 umsóknir frá mjög efnilegum einstaklingum og stóðum við frami fyrir því erfiða verkefni að velja aðeins fimm. Við hvetjum áhugasama til að sækja um og hlökkum til að halda áfram nánu samstarfi við Háskóla Íslands,“ segir Ella Sigga Guðlaugsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs hjá Alvotech.
Hér er hægt að sækja um starfsþjálfunarstöðurnar hjá Alvotech en umsóknarfrestur er til 6. desember.