Skip to main content
10. nóvember 2021

Listrænar uppákomur og umræður um sjálfbæra þróun

Listrænar uppákomur og umræður um sjálfbæra þróun - á vefsíðu Háskóla Íslands

Um þessar mundir standa Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun og Norræna húsið að viðburðarröðinni Sjálfbær samruni – samtal lista og vísinda um sjálfbærni. Í viðburðarröðinni sem fer fram í Norræna húsinu er blandað saman erindum, listrænum uppákomum og umræðum sem tengjast sjálfbærri þróun. Næsti viðburður verður fimmtudaginn 11. nóvember kl. 16.

Listir og vísindi hafa lengi átt samleið en hafa með tímanum fjarlægst. Í raun er margt í samfélaginu orðið hólfaskipt og eru listir og vísindi þar engin undantekning. Til að ná fram markmiðum sjálfbærrar þróunar er nauðsynlegt að vinna þvert á fagsvið og fræðigreinar og virkja allt samfélagið til að takast á við áskoranir samtímans og framtíðarinnar. 

Menning og listir eru drífandi afl í stórum samfélagslegum breytingum og sinna mikilvægu hlutverki á umbrotatímum; frá grasrótinni og upp í rótgrónar opinberar menningarstofnanir. Þær áskoranir sem við mannkynið stöndum nú frammi fyrir kalla á þátttöku alls samfélagsins og þar þjóna menning og listir mikilvægu hlutverki. Listir geta verið vettvangur til að fræðast, hugleiða, vera saman og finna innblástur. Listir hafa lag á því að takast á við mjög flókin viðfangsefni, setja þau í samhengi, miðla upplýsingum og víkka sjóndeildarhring okkar. Listin getur byggt brýr milli ólíkra samfélagshópa, ögrað ímyndunaraflinu og stuðlað að gagnrýnni hugsun en jafnframt frætt um leið og þær hugga, stuðla að samkennd og tengja málefni við stærra samhengi. 

Nauðsynlegt er að virkja skapandi hugsun og efla samstarf milli lista og vísinda til að takast á við yfirvofandi áskoranir eins og loftslagsvá, tap á líffræðilegri fjölbreytni og ójöfnuð. Markmiðið með viðburðarröðinni Sjálfbær samruni – samtal lista og vísinda um sjálfbærni er að efla þetta samtal, veita innblástur og vekja athygli á hlutverki skapandi greina í vegferðinni að sjálfbærara samfélagi. Í viðburðarröðinni kemur fólk úr ýmsum skapandi greinum, svo sem myndlist, tónlist, sviðslistum og ritlist saman og ræðir við fólk úr vísinda- og fræðasamfélaginu um sjálfbærni frá ýmsum sjónarhornum. 

Á síðasta viðburði var útgangspunkturinn miðlun þekkingar og hvernig við skilgreinum þekkingu. Við fengum við að heyra um listkennsluaðferðir í sjálfbærnismenntun, hugvekju um vinskap vísindafólks við náttúruna og hlustuðum á tónlistaflutning sem tekst á við loftslagsbreytingar og samskipti kynslóða.

Í næsta viðburði, sem fer fram á morgun, fimmtudaginn 11. nóvember, kl. 16 í Norræna húsinu, beinum við sjónum okkar að sögum okkar samtíma, samskiptum, hlustun og von. Við spyrjum spurninga, eins og hvert hlutverk skapandi greina er í að segja sögur sem vekja fólk til vitundar um sjálfbærni og umhverfismál en vekja einnig von um framtíðina. Hvaða hlutverki gegna skapandi greinar þegar við mótum sameiginlega framtíðarsýn?

Viðburðinum verður streymt á Facebook og Vimeo