Skip to main content
29. janúar 2022

Stafrænir Atvinnudagar HÍ skapa tækifæri fyrir stúdenta

Stafrænir Atvinnudagar HÍ skapa tækifæri fyrir stúdenta - á vefsíðu Háskóla Íslands

Stefnumót við reynslubolta úr atvinnulífinu, góð ráð um undirbúning fyrir atvinnuviðtal, yfirhalning á ferilskránni, leiðbeiningar um hvernig koma á hugmyndum í framkvæmd og kynning á tækifærum í þekkingarhagkerfinu fyrir doktorsmenntaða er meðal þess sem í boði verður á árlegum Atvinnudögum í Háskóla Íslands dagana 31. janúar - 4. febrúar. Viðburðir í vikunni verða allir á netinu og öllum opnir. 

Atvinnudagar eru nú haldnir í sjötta sinn í HÍ. Þar er lögð sérstök áhersla á atvinnumál og undirbúning nemenda Háskóla Íslands fyrir þátttöku í vinnumarkaði en um þessar mundir eru fjölmargir nemendur ýmist að huga að sumar- eða framtíðarstörfum. Náms- og starfsráðgjöf HÍ (NSHÍ), Tengslatorg skólans, Fjármála- og atvinnulífsnefnd Stúdentaráðs og Vísindagarðar HÍ standa að dagskránni og er yfirskrift hennar að þessu sinni „Starfshæfni framtíðar“.

Fjölbreytt og spennandi dagskrá

Boðið verður upp á spennandi stafræna dagskrá alla vikuna með þátttöku fulltrúa víða úr íslensku atvinnulífi og innan Háskólans. Dagskráin hefst með opnunarviðburði mánudaginn 31. janúar þar sem Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Reiknistofu bankanna, miðlar af mikilli reynsu sinni sem stjórnandi í íslensku atvinnulífi. Í framhaldinu rekur hver viðburðurinn annan en meðal þeirra má nefna erindi Begga Ólafs um árangursíka vegferð út á vinnumarkað, stefnumót við magnaða reynslubolta úr atvinnulífinu á vegum Tengslatorgs og Vísindagarða Háskóla Íslands, undirbúning fyrir atvinnuviðtöl með sérfræðingum Hagvangs og heilræði um hvernig koma á hugmynd í framkvæmd með aðstandendum hakkaþonsins Reboot Hack.

Vinnustofur og fræðsla í eina viku

Náms- og starfsráðgjöf býður upp á vinnustofur og fyrirlestra alla vikuna, bæði á íslensku og ensku, um það hvernig best er að komast í samband við vinnumarkaðinn, útbúa ferilskrá og kynningarbréf og hvernig nýta á tækifæri í atvinnuviðtali til að koma sér vel á framfæri. Einnig verður veitt aðstoð við að fara yfir ferilskrána í svokallaðri CV klíník auk þess er sérstök áhersla er lögð á starfsþróun doktorsnema og tækifæri þeirra í þekkingarhagkerfinu, en doktorsmenntuðum fjölgar hratt á Íslandi þessi misserin. 

„Þrátt fyrir að hjól atvinnulífsins snúist kannski örlítið hægar þessa mánuðina vegna heimsfaraldurs er stór hópur stúdenta að búa sig undir þátttöku í atvinnulífinu með því að mennta sig í Háskóla Íslands. Skólinn leggur áherslu á að mennta fólk til framtíðarstarfa og styðja nemendur í að skapa nýja þekkingu og tækifæri, bæði fyrir sig og samfélagið. Í nýrri stefnu skólans, HÍ26, er lögð áhersla á starfshæfni stúdenta og endurmenntunartækifæri og Atvinnudagar styðja sannarlega við þessa stefnumörkun,“ segir Jónína Kárdal, náms- og starfsráðgjafi og umsjónarmaður Atvinnudaga HÍ.

Í vikunni verður jafnframt fyrsta vinnulotan í AWE-nýsköpunarhraðlinum fyrir konur sem Háskóli Íslands og Bandaríska sendiráðið standa nú fyrir í annað sinn.

Nánari upplýsingar um Atvinnudaga í Háskóla Íslands og tengla á alla viðburði er að finna á vef daganna en þeir eru öllum opnir. 

 

Nemendur