Teymisvinna í brennidepli

Stýrihópur Heilsutorgs Heilbrigðisvísindasviðs stóð fyrir málþingi um teymisvinnu föstudaginn 20. maí sl. í Eirbergi. Yfirskrift málþingsins var „Teymisvinna í takt við tímann“.
Birgir Jakobsson landlæknir opnaði málþingið með erindi sem bar heitið „Af hverju er teymisvinna mikilvæg í heilbrigðiskerfinu?“. Birgir lagði áherslu á teymisvinnu til að stuðla að öryggi heilbrigðisþjónustunnar þar sem sjúklingurinn er í fyrirrúmi.
Guðrún Á. Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur fjallaði um nýjungar í teymisvinnu á Landspítalanum. Hún greindi frá STREYMA-verkefninu en það er nýtt form á samræmdum stofugangi þar sem öll samskipti fara fram við sjúkrabeð sjúklings. STREYMA er nú í innleiðingu á Landspítalanum.
Anna Kristín Sigmarsdóttir hjúkrunarfræðingur greindi frá nýjungum í teymisvinnu hjá Heilsugæslunni á Húsavík. Hún fjallaði um starfsmannabreytingum sem orðið höfðu sem kölluðu á nýja starfshætti og aukna teymisvinnu heilbrigðisstarfsfólks.
Sóley S. Bender, formaður stýrihóps Heilsutorgs, flutti erindi um það sem hefur áunnist nú þegar Heilsutorg háskólanema hefur verið starfrækt í tvö ár á Heilsugæslu Glæsibæjar. Lagði hún áherslu á ávinning nemenda, leiðbeinenda og þjónustuþega af Heilsutorgi. Guðrún Bjarnadóttir, sálfræðingur og leiðbeinandi á Heilsutorgi, greindi frá sýn leiðbeinanda. Berglind S. Blöndal, nemi í næringarfræði, og Gunnar S. Jónbjörnsson, nemi í sjúkraþjálfun, greindu frá reynslu nemenda af Heilsutorgi.
Að síðustu flutti Teddie Potter, klínískur dósent við University of Minnesota School of Nursing, erindi undir yfirskriftinni „Transforming health care: A parntership approach“. Teddie gerði m.a. grein fyrir heilbrigðisþjónustu sem byggist á yfirráðum (e.domination-based) og þeirri sem byggist á samvinnu (e.partnership-based) og hvernig þessi ólíka menning innan heilbrigðisstofnana getur haft áhrif á líðan heilbrigðisstarfsfólks og starfsemi stofnunarinnar og þar með gæði þjónustunnar.
Málþingið var tekið upp og verður upptakan gerð aðgengileg von bráðar.