Skip to main content

Viltu verða framhaldsskólakennari?

Framhaldsskólakennaranám er fyrir þá sem hafa þegar lokið námi í kennslugrein í framhaldsskóla, samkvæmt aðalnámskrár framhaldsskóla, og vilja afla sér kennsluréttinda. 

Menntun framhaldsskólakennara er fyrir þau sem hafa lokið bakkalárnámi í bóknáms-, tungumál- og listgreinum sem kennd eru í framhaldsskóla.

Kennslufræði fyrir starfsmenntakennara er fyrir þau sem hafa lokið meistararéttindum í iðngrein eða löggiltu starfsréttindaprófi úr framhaldsskóla.

Menntun framhaldsskólakennara

Menntun framhaldsskólakennara er þverfræðilegt framhaldsnám allra fræðasviða Háskólans þar sem námi lýkur með MA-, M.Ed.-, MS- eða MT-gráðu til leyfisbréf kennari. Einnig er í boði viðbótardiplóma til kennsluréttinda fyrir þá sem lokið hafa meistaraprófi í kennslugrein framhaldsskóla, samkvæmt aðalnámskrár framhaldsskóla

Kennslufræði fyrir starfsmenntakennara

Kennslufræði fyrir starfsmenntakennara er diplóma til kennsluréttinda fyrir þá sem lokið hafa meistararéttindum í löggiltri iðngrein og langar að kenna sitt fag í framhaldsskóla. Námið er skilgreint sem hlutanám með vinnu sem lokið er á tveimur árum (fjórum önnum). Námið er með sveigjanlegu formi og er hugsað sem fjarnám með vinnu. Það eru þó skilgreindir tímar sem nemendur þurfa að mæta í, annað hvort staðlotur (skyldumæting tvisvar á önn) eða reglubundin fjarkennsla á rauntíma. Nemendur þurfa því að gera ráð fyrir að geta mætt á þessum tímum til að taka þátt í náminu. Vettvangsnám er tekið á öðru ári námsins. Nemendur mæta reglulega í tilgreindan framhaldsskóla og vinna undir leiðsögn æfingakennara. 

Tengt efni