Skip to main content
1. nóvember 2021

Göngum saman styrkir vísindamenn HÍ til rannsókna á brjóstakrabbameini

Göngum saman styrkir vísindamenn HÍ til rannsókna á brjóstakrabbameini - á vefsíðu Háskóla Íslands

Fjórir vísindamenn og nemendur við Háskóla Íslands hlutu rannsóknarstyrki úr styrktarsjóði Göngum saman til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini. Styrkirnir voru afhentir við hátíðlega athöfn þann 28. október og nema samanlagt 10,5 milljónum króna. 

Þetta var í fjórtánda skipti sem Göngum saman veitir styrki til rannsókna á brjóstakrabbameini. Vísindamenn Háskólans hafa frá upphafi notið mikillar velvildar samtakanna sem hafa samanlagt lagt nær 120 milljónir króna til brjóstakrabbameinsrannsókna.

Eftirtaldir aðilar fengu styrk að þessu sinni: 

Kristinn Ragnar Óskarsson, nýdoktor við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands, hlaut 3 milljónir króna til verkefnisins „Skoðun á breytingu í bindingu krabbameinsvaldandi stökkbrigða af FoxA1 við litnisagnir“.

María Rose Bustos, meistaranemi í líf- og læknavísindum við Háskóla Íslands, hlaut 2,7 milljónir króna til verkefnisins „Brjóstaæxli BRCA2999Δ5 arfbera“.

Snædís Ragnarsdóttir, doktorsnemi í líf- og læknavísindum við Háskóla Íslands, hlaut 2,3 milljónir króna til verkefnisins „BRCA2 stökkbreyting, tap á villigerðarsamsætu og meðferð“.

Snævar Sigurðsson, rannsóknasérfræðingur við Lífvísindasetur Háskóla Íslands, hlaut 2,5 milljónir króna til verkefnisins „Heildstæð úttekt á gena og prótín tjáningu í brjóstastofnfrumulínu D492 í tvívíðri og þrívíðri rækt og í myndun greinóttra formgerðar og bandvefsumbreytingu“.

Styrkveitingin fór fram í Hannesarholti og söng tónlistarkonan Ingibjörg Steingrímsdóttir nokkur lög við það tækifæri.    

Um Göngum saman

Styrktarsjóður Göngum saman styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini. Styrkveitingin byggist að mestu leyti á frjálsum framlögum einstaklinga sem hafa lagt hafa sitt af mörkum með þátttöku í fjáröflunum félagsins. Þær voru margvíslegar í ár, s.s. Þórsmerkurferð með Volcano Trails, kaup á Brjóstasnúðum Brauð&co í tilefni Mæðradagsins og kaup á ýmsum söluvarningi félagsins. Einnig hafa ýmis félagasamtök, fyrirtæki og einstaklingar lagt Göngum saman lið en megináhersla er á að öll framlög renni óskipt í styrktarsjóð félagsins. Göngum saman hefur veitt nær 120 milljónir króna til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini frá stofnun félagsins árið 2007.

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Snævar Sigurðsson, Snædís Ragnarsdóttir, María Rose Bustos, Kristinn Ragnar Óskarsson og Gunnhildur Óskarsdóttir, formaður og stofnandi Göngum saman.