Sálrækt áfram í boði á vormisseri
Nemendum við Háskóla Íslands býðst að sækja Sálrækt - hópmeðferð ókeypis í vetur og hefst hún á ný eftir jólafrí þann 27. janúar.
Umræðum í hópmeðferðinni er ætlað að hjálpa nemendum að fást við erfiðleika í hversdagslífinu sem geta spannað allt frá fjölskyldu, skóla og persónulegum málum til samskipta. Veitt er fræðsla og stuðst við viðurkennda hugmyndafræði, hugræna tilfinninga- og atferlismeðferð (e. Rational Emotive Behavior Therapy).
Hópfundir verða haldnir í Suðurbergi, sem er stofa á þriðju hæð í Setbergi, húsi kennslunnar við HÍ. Fundað verður vikulega á fimmtudögum kl. 14-15.30 og verður fyrist fundur á vorönn þann 27. janúar.
Dr. Gunnar Hrafn Birgisson, klínískur sálfræðingur, leiðbeinir (www.gunnarbirgisson.com)
Áhugasöm sendi póst á netfangið salraekt@gmail.com með nafni og símanúmeri.
Athugið að þátttökufjöldi er takmarkaður. Þau fyrstu sem sækja um komast að fyrst og af biðlista komast svo önnur að eftir röð.