Skip to main content
14. febrúar 2022

Tilnefningar til viðurkenningar Hagþenkis

Tilnefningar til viðurkenningar Hagþenkis - á vefsíðu Háskóla Íslands

Tíu rit hafa verið tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis, þar af sex bækur eftir fræðafólk við Háskóla Íslands. Viðurkenning Hagþenkis er veitt fyrir fræðirit, kennslugögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis eða rannsókna. 

Fræðafólk við Háskóla Íslands var tilnefnt að þessu sinni fyrir eftirfarandi bækur:  

  • Arfur aldanna. I Handan hindarfjalls. II Norðvegur eftir Aðalheiði Guðmundsdóttur, prófessor við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Háskólaútgáfan gefur út. Úr umsögn viðurkenningarráðs: „Vandað og yfirgripsmikið rit sem opnar heillandi baksvið fornaldarsagna fyrir lesendum.“
  • Galdur og guðlast á 17. öld. Dómar og bréf I-II eftir Má Jónsson, prófessor við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Sögufélag gefur út. Úr umsögn viðurkenningarráðs: „Rit sem opnar greiða leið að frumheimildum um galdramál og veitir jafnframt góða yfirsýn yfir framandlegt tímabil sögunnar.“
  • Kynjafræði fyrir byrjendur eftir Þórð Kristinsson, doktorsnema við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, og Björk Þorgeirsdóttur. Mál og menning gefur út. Úr umsögn viðurkenningarráðs: „Vel unnið og vekjandi kennsluefni sem gerir nýrri námsgrein góð skil og tengir saman sögulegar forsendur og samtímaumræðu.“
  • Lénið Ísland. Valdsmenn á Bessastöðum og skjalasafn þeirra á 16. og 17. öld eftir Kristjönu Kristinsdóttur í útgáfu Þjóðskjalasafns Íslands. Bókin byggir á doktorsverkefni Kristjönu við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Úr umsögn viðurkenningarráðs: „Vandað og ítarlegt verk um stöðu Íslands sem léns í danska konungsríkinu, byggt á umfangsmikilli rannsókn á frumheimildum.“
  • Samfélagshjúkrun eftir Aðalheiði Stefaníu Helgadóttur, doktorsnema við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Iðnú útgáfa gefur bókina út. Úr umsögn viðurkenningarráðs: „Þarft kennslurit um samfélagslega brýn málefni sem hefur víða skírskotun og nýtist bæði skólafólki og almenningi.“
  • Þvílíkar ófreskjur. Vald og virkni ritdóma á íslensku bókmenntasviði eftir Auði Aðalsteinsdóttur nýdoktor við Rannsóknasetur Margrétar II. Danadrottningar og frú Vigdísar Finnbogadóttur um haf, loftslag og samfélag (ROCS). Sæmundur gefur bókina út. Úr umsögn viðurkenningarráðs: „Brautryðjandaverk þar sem fjallað er um þróun bókmenntaumfjöllunar á Íslandi með hliðsjón af alþjóðlegum straumum.“

Viðurkenning Hagþenkis verður veitt við athöfn um miðjan mars. Sérstakt viðurkenningarráð annast veitingu viðurkenningarinnar, skipað Auðunni Arnórssyni, Árna Einarssyni, Halldóru Kristinsdóttur, Súsönnu Margréti Gestsdóttur og Svanhildi Óskarsdóttur.

Við tilnefningu til viðurkenninga Hagþenkis.