Skip to main content
15. febrúar 2022

Ásta á Háskólatónleikum í Stakkahlíð

Ásta á Háskólatónleikum í Stakkahlíð - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskólatónleikaröðin hefur göngu sína á nýju ári með bravúr í hádeginu miðvikudaginn 16. febrúar en þá mun tónlistarkonan Ásta koma fram í Fjöru, sal sem Menntavísindasvið HÍ býr að í Stakkahlíð. Tónleikarnir verða líka sendir út í streymi.

Ásta sló í gegn eftir að hafa komið fram á Músíktilraunum árið 2019 en heyra mátti saumnál detta er hún flutti einlægar lagasmíðar sínar með hjartað opið upp á gátt. Umsjónarmaður þessarar raðar var svo heppinn að vera á staðnum og setti þessi orð óðar niður á blað, innblásinn mjög: „Í einu laginu beygði hún af og það augnablik mun aldrei líða mér úr minni. Túlkun, einlægni og ástríða verður bara ekki greinilegri, sönnun á hinum ótrúlega heilunarmætti tónlistar og þeim áhrifum sem hún getur haft á okkur öll.“

Tónleikarnir fara fram miðvikudaginn 16. febrúar og hefjast leikar kl. 12.15. Staður er Fjara, Stakkahlíð, hvar Menntavísindasvið HÍ er með höfuðstöðvar. Tónleikunum verður einnig streymt og hægt verður að horfa á þá síðar í upptökuformi. Hvort sem þú ert í borginni, úti á landi eða úti í heimi getur þú notið hinna fögru tóna Háskólatónleikaraðarinnar og upplifað stemninguna í skólanum. Öll velkomin á staðinn og aðgangur gjaldfrjáls. 

Gildandi sóttvarnarreglum er að sjálfsögðu fylgt og eru væntanlegir gestir beðnir um að gæta að þeim í hvívetna. Reglurnar eru þessar helstar: 

  • Nándarmörk eru 1 metri. 
  • Skylt er að nota grímu sé ekki hægt að virða 1 metra reglu. 
  • 200 manns mega að hámarki vera í sama rými.
  • Fólk er hvatt til þess að huga vel að einstaklingsbundnum sóttvörnum.

Slóð á streymið

Um Háskólatónleika

Háskólatónleikaröðin hóf göngu sína með nýjum áherslum haustið 2020 og hafa listamenn af alls kyns toga troðið upp. Tónleikunum hefur öllum verið streymt með glæsibrag og má nálgast upptökur af þeim á vef Háskólans

Um áratugabil, og raunar í hálfa öld, hefur það verið hefð í Háskóla Íslands að standa fyrir svofelldum Háskólatónleikum. Um reglulega viðburði er að ræða, á haust- og vorönn, og fara þeir fram í byggingum háskólans.

Umsjónarmaður tónleikaraðarinnar og listrænn stjórnandi er dr. Arnar Eggert Thoroddsen og segist hann styðjast við slagorðið „Háskóli fyrir alla - Tónlist fyrir alla“. Fólk geti því búist við tónlist sem tilheyri alls kyns geirum, svosem poppi/rokki, djass, klassík og bara því sem álitlegt þykir hverju sinni. 

Ásta