Skip to main content
22. febrúar 2022

Vísindin í HÍ í háskerpu á Hringbraut

Vísindin í HÍ í háskerpu á Hringbraut - á vefsíðu Háskóla Íslands

Srí Lanka er perlulaga eyja í Indlandshafi og lítið sund greinir hana frá Indlandi. Þótt eyjan, sem áður hét Ceylon, sé ekki oft í fréttum hér er skráð saga menningar í þessu eylandi býsna löng og nær hún þrjú þúsund ár aftur í tímann. Þá eru vísbendingar um forsögulegar mannabyggðir á eyjunni fyrir a.m.k. 125 þúsund árum. Á meðan skafrenningur blindar fólki sýn hér á þorranum er hitabeltislofslag ríkjandi á Srí Lanka. Við fyrstu sýn er því ekki ýkja margt sameiginleg með Íslandi og Srí Lanka enda eru þar um 15 þúsund fílar og litskrúðugir páfuglar partur af náttúrunni en þar eru líka stokkendur auk þess sem koma má auga á steypireyðar í hvalaskoðun sem er vinsæl iðja ferðafólks við eyjuna. 

Þeir sem unna tei hafa stundum örlítinn part af þessari framandi eyju í bollanum sínum en þaðan kemur nefnilega gæðalaufið sem unnið er í svokallað Ceylon-te. Efnafræðingurinn Þóra Katrín Kristinsdóttir kemur líka frá þessari gullfallegu eyju en hún fæddist þar árið 1984 og kom hingað sem reifabarn, bara mánaðargömul þegar Íslendingar hlustuðu hvað ákafast á „Wake me up before you gogo“ með enska tvíeykinu í Wham. 

„Já, ég er ættleidd frá Srí Lanka en frá því ég kom til Íslands hef ég alltaf búið í Kópavoginum,“ segir Þóra Katrín og brosir en hún stýrir nú nýrri vísindaþáttaröð á sjónvarpsstöðinni Hringbraut sem hefur göngu sína í næstu viku. Hún viðurkennir líka að hún hafi alveg gaman að „80‘s tónlist“ þótt hugur hennar sé allur bundinn við vísindin þessa dagana. 

„Við verðum með fimm þætti á Hringbraut þar sem við ætlum að opna vísindasamfélagið alveg upp á gátt og gefa öllum innsýn inn í það stórkostlega starf sem fram fer við Háskóla Íslands. Við Íslendingar getum verið stolt af öllu því flotta fræðafólki sem starfar við HÍ og mér finnst frábært að kynna það og mikilvæg störf þess.“

Forréttindi að kynnast vísindafólki HÍ

Þáttaröðin nýja heitir „Vísindin og við“ og verða þættirnir frumsýndir á mánudagskvöldum. Þóra Katrín heldur um stjórnvölinn ásamt Sigmundi Erni Rúnarssyni, sjónvarpsmanni, rithöfundi og ritstjóra Fréttblaðsins. Hún segir að það séu hrein forréttindi að kynnast því frábæra fólki í þáttunum sem leggur hjarta sitt og sál í rannsóknir innan HÍ.  

„Það er svo ótrúlega margt flott í gangi við HÍ sem maður hafði bara ekki hugmynd um,“ segir hún. „Eins og t.d. þegar ég byrjaði að kynna mér hvað Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda, er að sýsla, þá uppgötvaði ég hlaðvarpið hans sem heitir „Flimtan og fáryrði.“ Það er bara alveg stórkostlegt.  Ég er að verða búin að hlusta á alla þættina og er orðin gríðarlegur aðdáandi Ármanns og Íslendingasagnanna líka. Það er líka svo gaman að sjá hvað þetta flotta fólk hefur mikla ástríðu fyrir því sem það er að gera og leggur allt sitt í rannsóknir.“

Mikilvægt að ungt fólk finni nám við hæfi

Þóra Katrín segir að þau Sigmundur Ernir hafi einnig spjallað við nemendur og samstarfsfólk fræðafólksins og forvitnast um hvers vegna það valdi sér þennan farveg og eins hvað bíði nemendanna að námi loknu.

Það er einmitt afar mikilvægt að spyrja þeirrar spurningar, hvað fólk ætli sér með prófgráðuna upp á vasann þegar haldið er út í atvinnulífið. Sjálfsagt hefur Þóru Katrínu ekki grunað að hún ætti eftir að stýra sjónvarpsþáttum þegar hún lauk BS-gráðu í efnafræði frá HÍ. Hún bætti svo við sig MS-prófi í lífrænum efnasmíðum. „Ég er líka með BS-gráðu í fjármálaverkfræði frá HR en þegar ég tók efnafræðikúrs þar fann ég hvernig hjartað sló.“

Þóra Katrín fór því í Háskóla Íslands og hóf þá nám í efnafræði. Hún segir að þótt allt nám sé sannarlega gagnlegt þá sé afar mikilvægt fyrir ungt fólk að kynna sér vel hvað sé í boði svo það finni strax nám sem henti hæfileikum þess og náðargáfu. 

Um næstu helgi er einmitt Stafræni háskóladagurinn og þá fá ungir Íslendingar aldeilis tækifæri til að finna nám sem hentar. Auk þess býður Háskóli Íslands upp á gríðarlega vinsælt námsvalshjól þar sem hægt er að finna alls kyns námsgreinar eftir áhugasviði hvers og eins. 

„Já, mér finnst svo mikilvægt fyrir ungt fólk að sjá hvað er í boði svo það verji ekki tíma í að læra eitthvað sem því finnst svo leiðinlegt. Ég viðurkenni alveg að mér finnst fátt leiðinlegra en fjármál en þegar ég var að velja mér fag var ég nýhætt við læknanám í Danmörku og ákvað bara að fara í allt aðra átt í stað þess að staldra við og kynna mér betur hvað var í boði.“

„Mér fannst alveg geggjað að vera í Sprengjugenginu,“ segir Þóra Katrín. „Það var svo gaman að sjá námið og fræðin lifna við á þennan hátt. Það var líka mjög gaman að sjá hvernig gengið kveikti hreinlega vísindaáhuga hjá börnum. Það jafnast ekkert á við höggbylgjuna sem kemur þegar maður sprengir risastóra vetnis-súrefnisblöðru,“ segir Þóra Katrín og skellihlær. MYND/Kristinn Ingvarsson

Stórkostlegt að vera nemandi í Háskóla Íslands

Þóra Kata er sannur háskólavinur eftir veru sína í HÍ. „Já, verðum við ekki að segja það,“ segir hún og skellihlær. „Mér fannst alla vega alveg stórkostlegt að vera partur af þessu magnaða háskólasamfélagi. Ég kynntist svo frábæru fólki sem eru mínir bestu vinir í dag, maður fékk tækifæri til að vinna að flottum rannsóknum en samt líka að skemmta sér og fíflast inn á milli.“

Þóra Katrín segir að Háskólinn skipti þjóðina gríðarlega miklu máli því þarna sé fólk í raun og veru að móta framtíð sína og framtíð samfélagsins á sama tíma. „HÍ er mjög góður undirbúningur fyrir lífið, hvort sem þú heldur áfram á þínu sérsviði eða ekki. Maður lærir fagleg og gagnrýnin vinnubrögð og skipulagningu sem hjálpar í öllu sem maður tekur sér fyrir hendur seinna í lífinu, allt frá rannsóknum yfir í að vinna sjónvarpsþáttaseríu,“ segir Þóra Katrín og brosir breitt. 

Geggjað í Sprengjugengi HÍ

Þegar Þóra Katrín var í Háskóla Íslands var hún munstruð í verðlaunateymið Sprengjugengið en hún tók þátt í fjölda sýninga með því undir stjórn Katrínar Lilju Sigurðardóttur, eða Sprengju-Kötu, sem nú er aðjunkt í efnafræði við HÍ. Sprengjugengið er þekkt um land allt fyrir efnabrellusýningar með ljósagangi og látum á heimsmælikvarða.

„Mér fannst alveg geggjað að vera í Sprengjugenginu,“ segir Þóra Katrín. „Það var svo gaman að sjá námið og fræðin lifna við á þennan hátt. Það var líka mjög gaman að sjá hvernig gengið kveikti hreinlega vísindaáhuga hjá börnum. Það jafnast ekkert á við höggbylgjuna sem kemur þegar maður sprengir risastóra vetnis-súrefnisblöðru,“ segir Þóra Katrín og skellihlær. 

Hún bætir því við að hún og allir hafi alltaf verið mjög vel varin. „Við vorum auðvitað að vinna með hættuleg efni og eld og öryggið var alltaf haft í fyrirrúmi og miklar æfingar og prófanir á bak við allt.“

Heiða María

Heiða María Sigurðardóttir, dósent í sálfræði, sem hefur ásamt samstarfsfólki rannsakað hvernig heilinn vinnur úr sjónrænum upplýsingum eins og til dæmis hjá einstaklingum með lesblindu. 

Lesblinda, sjávarfang, kynjafræði, heilsuefling og margt fleira

Í fyrsta þættinum af „Vísindin og við“ ræða þau Þóra Katrín og Sigmundur við Heiðu Maríu Sigurðardóttur, dósent í sálfræði, en að sögn Þóru Katrínar hefur hún rannsakað hvernig heilinn vinnur úr sjónrænum upplýsingum eins og til dæmis hjá einstaklingum með lesblindu. 

„Við ræðum líka við Guðrúnu Marteinsdóttur, prófessor í sjávarlíffræði. Guðrún hefur þróað og framleitt snyrtivörur úr sjávarlífverum. Það er svo flott hvað hægt er að vinna úr auðlindum hafsins sem við höfðum jafnvel ekki hugmynd um,“ segir Þóra Katrín sem bætir því við að Guðrún hafi sýnt fram á mjög frumlega hagnýtingu á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar og hvernig unnt sé að leggja saman krafta vísinda og daglegs lífs. 

Í öðrum þættinum verður spjallað við Ármann Jakobsson eins og áður sagði og svo verður seinna fjallað um rannsóknir Gyðu Margrétar Pétursdóttur, prófessors í kynjafræði við HÍ. Þá verður líka rætt við Ársæl Má Arnarsson prófessor um rannsóknir á sviði heilsueflingar og líðanar ungmenna.

Fyrsti þátturinn í röðinni verður frumsýndur mánudaginn 28. febrúar og hinir þættirnir næstu fjóra mánudaga þar á eftir en þess má geta að þættirnir eru allir unnir í tengslum við 110 ára afmæli Háskóla Íslands. 

 Fylgist með frá byrjun á Hringbraut.

Hluti af starfsævi Þóru Katrínar hefur farið í rannsóknir. Hún hefur m.a. unnið hjá Íslenskri erfðagreiningu en starfar núna hjá Coripharma sem efnafræðingur og sérfræðingur í þróun á mæliaðferðum lyfja. Áhugi hennar á vísindum og efnafræði kviknaði upphaflega í efnafræðitímum í Menntaskólanum í Kópavogi.  

„Rannsóknir skipta gríðarlega miklu máli, án þeirra verður engin framþróun. Tækninni fleygir fram og það er alltaf eitthvað nýtt að koma í ljós sem væri ómögulegt án rannsókna,“ segir Þóra Katrín sem er gift Jóni Guðfinnssyni tónlistarmanni en saman eiga þau tvær dætur, þær Laufeyju Rós sem er fædd árið 2009 og Lilju Karen sem er fædd árið 2012.

Þóra Katrín segir að ótrúlegur efniviður sé til staðar í vísindasamfélaginu í HÍ og því sé næsta sería þegar á teikniborðinu. 

Vefur Hringbrautar

Jón Örn Guðbjartsson, Þóra Katrín Kristinsdóttir og Sigmundur Ernir Rúnarsson