Skip to main content

Útgáfuhóf – Fötlun, sjálf og samfélag

Útgáfuhóf – Fötlun, sjálf og samfélag - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
6. mars 2025 15:45 til 17:00
Hvar 

Bóksala Stúdenta

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Út er komin bókin Fötlun, sjálf og samfélag: Birtingarmyndir og úrlausnarefni í ritstjórn Snæfríðar Þóru Egilson, prófessors í fötlunarfræði við HÍ.

Bókinni er ætlað að varpa ljósi á líf og félagslegar aðstæður fatlaðs fólks hér á landi í ljósi gagnrýninna kenninga og íslenskra rannsókna á sviði fötlunarfræði. Athygli er beint að helstu viðfangs- og úrlausnarefnum ólíkra æviskeiða og að flóknu samspili félagslegra, efnislegra og stofnanabundinna hindrana sem skapa og viðhalda fötlun og torvelda fötluðu fólki að lifa góðu lífi. Kaflarnir tólf veita greinargóða innsýn í þróun fræðasviðsins síðustu ár og áratugi en höfundar efnis eru rannsakendur sem beint hafa sjónum að ólíkum sviðum innan fötlunarfræði.

 

Bókin er ætluð til kennslu í háskólum en getur einnig gagnast fötluðu fólki, fjölskyldum þess, hagsmunasamtökum fatlaðs fólks, þjónustuveitendum og stefnumótandi aðilum. Höfundar bókarinnar vænta þess að efni hennar og umfjöllun veki fólk til umhugsunar og leiði til aðgerða sem dragi úr aðgreiningu og stuðli að félagslegu réttlæti, jákvæðum viðhorfum, bættu aðgengi og betri þjónustu.

Bókin Fötlun, sjálf og samfélag: Birtingarmyndir og úrlausnarefni er komin út, í ritstjórn Snæfríðar Þóru Egilson, prófessors í fötlunarfræði við HÍ.

Útgáfuhóf – Fötlun, sjálf og samfélag