Ný bók varpar ljósi á líf og aðstæður fatlaðs fólks á Íslandi

Bókin „Fötlun, sjálf og samfélag: Birtingarmyndir og úrlausnarefni“ er komin út í ritstjórn Snæfríðar Þóru Egilson, prófessors í fötlunarfræði við HÍ. Útgefandi er Háskólaútgáfan.
Bókinni er ætlað að varpa ljósi á líf og félagslegar aðstæður fatlaðs fólks hér á landi í ljósi gagnrýninna kenninga og íslenskra rannsókna á sviði fötlunarfræði. Athygli er beint að helstu viðfangs- og úrlausnarefnum ólíkra æviskeiða og flóknu samspili félagslegra, efnislegra og stofnanabundinna hindrana sem skapa og viðhalda fötlun og torvelda fötluðu fólki að lifa góðu lífi. Bókin samanstendur af tólf köflum sem veita greinargóða innsýn í þróun fræðasviðsins síðustu ár og áratugi en höfundar efnis eru rannsakendur sem beint hafa sjónum að ólíkum sviðum innan fötlunarfræði.
Bókin er ætluð til kennslu í háskólum en getur einnig gagnast fötluðu fólki, fjölskyldum þess, hagsmunasamtökum fatlaðs fólks, þjónustuveitendum og stefnumótandi aðilum. Höfundar bókarinnar vænta þess að efni hennar og umfjöllun veki fólk til umhugsunar og leiði til aðgerða sem dragi úr aðgreiningu og stuðli að félagslegu réttlæti, jákvæðum viðhorfum, bættu aðgengi og betri þjónustu.
Bókin er fáanleg í helstu bókabúðum, þar á meðal Bóksölu stúdenta, en einnig er hægt að kaupa hana á vef Háskólaútgáfunnar. Rafræn útgáfa bókarinnar verður aðgengileg í sumar og þá verður einnig hægt að kaupa þá staka kafla úr henni.