Hugvísindaþing 2025 - fyrri dagur

Hugvísindaþing 2025 verður haldið í Háskóla Íslands dagana 7. og 8. mars.
Ólöf Garðarsdóttir, forseti Hugvísindasviðs, setur þingið í Hátíðasal í Aðalbyggingu föstudaginn 7. mars kl. 12. Í kjölfarið verður pallborð með yfirskriftinni Án okkar, heimsendir! Um hugvísindin og samfélagið í dag og á morgun. Þar ræða fyrrverandi og núverandi sviðsforsetar, Ástráður Eysteinsson, Guðmundur Hálfdánarson og Ólöf Garðarsdóttir, stöðu og framtíð Hugvísinda. Pallborðinu stýra Eiríkur Smári Sigurðarson, rannsóknastjóri á Hugvísindasviði, og Ásta Kristín Benediktsdóttir, dósent við Íslensku- og menningardeild. Aðgangur er öllum heimill og ókeypis. Verið velkomin á Hugvísindaþing!
Sjá dagskrá Hugvísindaþings föstudaginn 7. mars.
Aðgangur er öllum heimill og ókeypis. Verið velkomin á Hugvísindaþing!
Hugvísindaþing 2025 verður haldið í Háskóla Íslands dagana 7. og 8. mars.
