Skip to main content

Bandaríkin - traustur bandamaður?

Bandaríkin - traustur bandamaður?  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
14. mars 2025 12:00 til 13:15
Hvar 

Edda

Fyrirlestasalur Eddu

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands föstudaginn 14. mars frá klukkan 12:00 – 13:15 í fyrirlestasal Eddu, Háskóla Íslands.  

Á þeim sex vikum sem liðnar eru frá því að Donald Trump tók við völdum í Hvíta húsinu hafa orðið miklar og ófyrirséðar breytingar á utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Á þessum opna fundi munum við ræða hvaða áhrif yfirlýsingar og aðgerðir Trump hafa á varnir Íslands og alþjóðaviðskipti.  

Hvað þýðir það fyrir varnir Íslands að varnarskuldbindingar Bandaríkjanna gagnvart NATO og Evrópu séu í vafa? Hvernig er Ísland í stakk búið til þess að bregðast við sambærilegum kröfum og  þeim sem Bandaríkjastjórn hefur beint gagnvart Grænlandi og Danmörku? Hvaða áhrif munu möguleg tollastríð hafa á íslenskan og alþjóðlegan efnahag? Eru að eiga sér stað grundvallar breytingar á frjálsum alþjóðaviðskiptum?

Þá verður rætt um að hvaða marki Trump hefur náð árangri með stefnubreytingum Bandaríkjanna í utanríkismálum og spáð í spilin um hvers sé að vænta í utanríkisstefnu Trump næstu fjögur árin.  

Á þessum opna fundi munu Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur, Katrín Ólafsdóttir, dósent við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra, ræða þessar spurningar og greina stöðuna sem upp er komin. 

Fundarstjóri: Elín Margrét Böðvarsdóttir, fréttamaður á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni.

Fundurinn fer fram á íslensku og er opinn öllum!

Opinn fundi um samskipti Íslands og Bandaríkjanna. Föstudaginn 14. mars 12:00 – 13:15 Fyrirlestrasalur Eddu, Háskóla Íslands.  Á þeim sex vikum sem liðnar eru frá því að Donald Trump tók við völdum í Hvíta húsinu hafa orðið miklar og ófyrirséðar breytingar á utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Á þessum opna fundi munum við ræða hvaða áhrif yfirlýsingar og aðgerðir Trump hafa á varnir Íslands og alþjóðaviðskipti.

Bandaríkin - traustur bandamaður?