Fyrirlestraröð Félags fornleifafræðinga: Ágústa Edwald Maxwell

Ágústa Edwald Maxwell flytur erindið „Nýting, neysla og nægjusemi: fornleifafræði rusls“ í Fyrirlestraröð Félags fornleifafræðinga.
Haldið miðvikudaginn 5. mars kl. 12:0 á Zoom. Smellið hér til að fylgjast með streymi.
Um fyrirlesturinn
Í fyrirlestrinum verður fjallað um rannsóknarverkefnið Fornleifafræði rusls (e. Archaeology of Waste) sem styrkt var af Rannís og höfundur vann að við Háskóla Íslands á árunum 2019 - 2022. Niðurstöður verkefnsins verða teknar saman og kynntar.
Rannsóknin hefur varpað ljósi á hvernig rusl verður að heimild um fortíðina og hvaða þættir hafa áhrif á varðveislu þess og geymd. Þessi heimild sínir skýrt breyttar neysluvenjur, nýtingu og (ó)nýtingu á hráefni og auðlindum samfara innreið nútímans og gefur jafnvel vísbendingu um hvernig beina mætti neyslu samfélagsins í átt að aukinni nægjusemi.
Ágústa Edwald Maxwell flytur erindið „Nýting, neysla og nægjusemi: fornleifafræði rusls“ í Fyrirlestraröð Félags fornleifafræðinga.
