Safnafræði í fjarnámi

Zoom: https://eu01web.zoom.us/j/64740116489?pwd=BnhiDxOTekfKvEJObJmWVUUFEOcX8L.1 (Fundarauðkenni: 647 4011 6489 / Lykilorð: vor2025)
Fyrirlesari: Guðrún Dröfn Whitehead, lektor í Safnafræði í Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands.
Lýsing: Frá upphafi hefur safnafræði boðið upp á þann möguleika að stunda námið í fjarnámi. Fram til ársins 2015 var hlutfall staðnema og fjarnema nokkuð jafnt, en fjarnemum tók að fjölga upp frá því almennt þvert á deildir við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands. Árið 2014 vann Guðrún skýrslu þar sem staða fjarnáms í námsbraut var tekin saman og metin. Niðurstöðurnar leiddu í ljós nauðsyn þess að huga betur að þörfum fjarnemenda og hverskonar fjarnám væri í boði. Stærsta vandamálið var að meginþorri nemenda var skráður í fjarnám, en kennsluhættir miðuðu einkum að staðnámi.
Í ljósi þessara niðurstaðna, var sú ákvörðun tekin að hanna námslínuna í safnafræði alfarið út frá forsendum fjarkennslu og þannig svara þörfum meirihluta nemenda. Frá hausti 2016 hefur verið boðið upp á öll kjarnanámskeið í safnafræði eingöngu í fjarnámi. Þar er leitast við að bjóða upp á fjölbreytta kennsluhætti í fyrirlestrum og verkefnum. Í þessum fyrirlestri verða fjarnámið kynnt, og kostir þess og áskoranir ræddar og hugmyndir um framtíð námsins hugleiddar.
Tími: Fimmtudagur, 6. mars kl. 12-13
Tungumál: Íslenska
Staður: Zoom: https://eu01web.zoom.us/j/64740116489?pwd=BnhiDxOTekfKvEJObJmWVUUFEOcX8L.1
(Fundarauðkenni: 647 4011 6489 / Lykilorð: vor2025)
Vefstofan er í boði: Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands og Fjarska – Samtaka um fjarnám og stafræna kennsluhætti.
Fyrirlesari: Guðrún Dröfn Whitehead, lektor í Safnafræði í Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands.
Lýsing: Frá upphafi hefur safnafræði boðið upp á þann möguleika að stunda námið í fjarnámi. Fram til ársins 2015 var hlutfall staðnema og fjarnema nokkuð jafnt, en fjarnemum tók að fjölga upp frá því almennt þvert á deildir við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands. Árið 2014 vann Guðrún skýrslu þar sem staða fjarnáms í námsbraut var tekin saman og metin. Niðurstöðurnar leiddu í ljós nauðsyn þess að huga betur að þörfum fjarnemenda og hverskonar fjarnám væri í boði. Stærsta vandamálið var að meginþorri nemenda var skráður í fjarnám, en kennsluhættir miðuðu einkum að staðnámi.
Í ljósi þessara niðurstaðna, var sú ákvörðun tekin að hanna námslínuna í safnafræði alfarið út frá forsendum fjarkennslu og þannig svara þörfum meirihluta nemenda. Frá hausti 2016 hefur verið boðið upp á öll kjarnanámskeið í safnafræði eingöngu í fjarnámi. Þar er leitast við að bjóða upp á fjölbreytta kennsluhætti í fyrirlestrum og verkefnum. Í þessum fyrirlestri verða fjarnámið kynnt, og kostir þess og áskoranir ræddar og hugmyndir um framtíð námsins hugleiddar.
Tími: Fimmtudagur, 6. mars kl. 12-13
Tungumál: Íslenska
Staður: Zoom: https://eu01web.zoom.us/j/64740116489?pwd=BnhiDxOTekfKvEJObJmWVUUFEOcX8L.1(Fundarauðkenni: 647 4011 6489 / Lykilorð: vor2025)