Samtal um skapandi greinar: Að vaxa skapandi

Rannsóknasetur skapandi greina (RSG) í samstarfi við CCP býður í samtal um skapandi greinar fimmtudaginn 6. mars klukkan 8:30 - 10 í húsakynnum CCP Í Grósku, 3. hæð, að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík. Yfirskrift fundarins að þessu sinni er Að vaxa skapandi: vöxtur og samdráttur fyrirtækja í skapandi greinum. Viðburðinum verður streymt þar til opnað verður fyrir spurningar úr sal.
Á fundinum munu Margrét Sigrún Sigurðardóttir, prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, Hjálmar Gíslason, frumkvöðull í hugbúnaðargeiranum, og Birna Hafstein, formaður Félags íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum, ræða saman um rekstur fyrirtækja í skapandi greinum og stöðu þeirra sem þar starfa, en fyrirtækin einkennast gjarnan af óvissri eftirspurn og harmonikku-vexti, þar sem þau vaxa og minnka eftir aðstæðum. Hjálmar mun miðla reynslu sinni af vexti og samdrætti í rekstri og Birna Hafstein veita innsýn í stöðu starfsfólks þessara fyrirtækja sem þurfa að horfast í augu við verkefnaráðningar og óvissu á vinnumarkaði.
Margrét Sigrún Sigurðardóttir er prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Hún er annar höfunda á skýrslu um hagræn áhrif skapandi greina sem markaði ákveðin tímamót í samtali um skapandi greinar á Ísland, en hefur jafnframt sinnt fræðilegum rannsóknum á skapandi greinum. Fundurinn mun byggja á greininni Growth Strategies in Creative Industries eftir Margreti og M. Candi (2019), sem birtist í Creativity and Innovation Management.
Birna Hafstein er formaður Félags íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum. Hún hefur víðtæka reynslu og þekkingu úr listum, menningu og skapandi greinum og farsæla stjórnunar-og rekstrarreynslu. Birna hefur sinnt fjölmörgum trúnaðarstörfum í gegnum árin, ekki síst á sviði menningar. Hún hefur setið í Þjóðleikhúsráði, stjórn Hörpu, stjórn BÍL og kvikmyndaráði svo fátt eitt sé nefnt. Hún var forseti Sviðslistasambands Íslands um árabil og stjórnarformaður Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna, og á sæti í Norræna leikararáðinu.
Hjálmar Gíslason er stofnandi og framkvæmdastjóri GRID – sem gerir notendum töflureikna kleift að búa til nútímaleg veföpp á einfaldan hátt. Jafnframt stofnaði hann fyrirtækið Maskínu um aldamótin, fyrirtæki sem þróaði hugbúnað fyrir farsíma, og Datamarket árið 2008 þar sem markmiðið var að gera gögn heimsins aðgengileg stjórnendum í viðskiptalífinu með lágmarksfyrirhöfn. Þessi listi er alls ekki tæmandi en Hjálmar byrjaði að forrita 8 ára gamall og hefur víðtæka reynslu af því að koma hugbúnaðarfyrirtækjum á koppinn.
Í kjölfar erinda lýkur streyminu og opnað verður fyrir umræður meðal fundargesta.
Samtal um skapandi greinar er röð óformlegra funda sem RSG stendur að í samvinnu við CCP. Með fundaröðinni vill RSG skapa samræðuvettvang áhugafólks um skapandi greinar með því að tengja saman hagaðila í einkageiranum, akademíunni og frá stofnunum og stjórnsýslunni og efla þannig umræðuna um menningu og skapandi greinar.
Vinsamlegast skráið mætingu (á staðinn) hér. Athugið að sætaframboð er takmarkað.
Skráningu lýkur kl. 12 miðvikudaginn 5. mars.
CCP býður fundargestum upp á kaffi og léttan morgunverð.
Rannsóknasetur skapandi greina (RSG) í samstarfi við CCP býður í samtal um skapandi greinar fimmtudaginn 6. mars klukkan 8:30 - 10 í húsakynnum CCP Í Grósku, 3. hæð, að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík. Yfirskrift fundarins að þessu sinni er Að vaxa skapandi: vöxtur og samdráttur fyrirtækja í skapandi greinum. Viðburðinum verður streymt þar til opnað verður fyrir spurningar úr sal.
